Jarðskjálfti reið yfir Kaupmannahöfn í dag, upp úr klukkan 16 að staðartíma, rúmlega 14 að íslenskum tíma.
Í frétt DR, danska ríkisútvarpsins, var fyrst haft eftir lögreglumanni að skjálftinn hafi verið að styrkleika 4,2. Aðrar mælingar gefa til kynna að skjálftinn hafi verið upp á 3,9. Það er sterkasti jarðskjálftinn í Danmörku í 14 ár.
Helga Fanney Þorbjarnardóttir, gullsmíðanemi sem býr í Refshaleøen-hverfi, segist hafa verið að þvo þvott þegar skjálftinn reið yfir. Hún segist fyrst hafa haldið að þetta væru læti vegna framkvæmda í nágrenninu en svo rann fljótt upp fyrir henni hvað var.
„Ég sendi skilaboð á nokkrar vinkonur mínar að ég hafi fundið skjálfta, en það trúði mér enginn. En ég veit alveg hvernig jarðskjálftar eru eftir að hafa fundið þá oft heima síðustu ár.“
Lögregla hefur að sögn DR fengið fjölmörg símtöl þar sem íbúar viða á Sjálandi segjast hafa fundið skjálftann. Hans varð vart allt til Óðinsvéa.
Stórt fyrir Danmörku
Skjálftinn átti upptök sín suður af Køge, sunnan við Kaupmannahöfn, og orsakaðist af misgengi.
Mathilde Bøttger Sørensen, jarðskjálftafræðingur við Bergen-háskóla, segir í samtali við DR að þó að skjálfti upp á 3,9 sé lítill á alþjóðlegum mælikvarða, sé þetta stærðarinnar skjálfti fyrir Danmörku.
Engin ástæða til að óttast
Fræðimenn við Uppsalaháskóla í Svíþjóð segja að engin ástæða sé fyrir Dani að hafa áhyggjur þó hús hafi skolfið.
Fréttin hefur verið uppfærð.