Kristrún ræðir möguleikann á ríkisstjórn án Flokks fólksins
„Engar breytingar í kortunum“
„Það er einhver algjör mýta að ég sé að losa mig við Flokk fólksins,“ svaraði Kristrún og bætti við að engar breytingar væru í kortunum á ríkisstjórninni. Hún sagði jafnframt að umræðan um mögulegar tilfærslur í stjórninni væru einskonar leikur sem fólk hefur gaman af að velta fyrir sér og að stjórnin starfaði vel saman.
„Mér líður mjög vel í þessari ríkisstjórn og ég er ekki að leita, né neinn annar, að leiðum til að gera breytingar,“ sagði hún.
Kristrún lagði áherslu á að Flokkur fólksins hefði styrkt ríkisstjórnina og að flokkarnir ættu samleið í mörgum málum, sérstaklega þegar kæmi að jafnaðarmálum.
Guðmundur Ingi styður áfram ríkisstjórnina
Að sögn Kristrúnar ræddi hún við Guðmund Inga stuttu fyrir úrsögn hans úr flokknum og hann hafi gert henni ljóst að hann styddi ríkisstjórnina áfram. Hún sagði málið vera innanflokksmál hjá Flokki fólksins og ekki tengjast óánægju með störf ríkisstjórnarinnar.
Hrósar Ingu Sæland
Í viðtalinu lét Kristrún einnig vel af samstarfi sínu við Ingu Sæland og sagði hana hafa haft áhrif á sig persónulega.
„Maður fyllist auðmýkt að vera í kringum hana,“ sagði hún og lýsti henni sem hreinskilinni stjórnmálakonu sem segi hlutina beint út og að þörf væri á fleiri slíkum karakterum í stjórnmálum.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.