Utanríkisráðherrar NATO-ríkja hefja formlega dagskrá fundarins með því að hitta starfsbræður þeirra frá Persaflóa. Í kjölfarið funda ráðherrarnir með úkraínska utanríkisráðherranum og utanríkismálastjóra Evrópusambandsins í svonefndu NATO-Úkraínuráði, að því er segir í tilkynningu frá stjórnarráðinu.
Dagskrá Kristrúnar hefst með hátíðarkvöldverði í boði Receps Erdogan, forseta Tyrklands og eiginkonu hans. Til hans er Volodýmýr Selenskí, forseta Úkraínu, og Lee Jae Myung, forseta Suður-Kóreu, einnig boðið auk forystufólks frá Evrópusambandinu.
Formlegur fundur leiðtoga Atlantshafsríkjanna fer svo fram á morgun. Aukin framlög til varnarmála, skipuleg byrðaskipting frá Bandaríkjunum til ríkja Evrópu og Kanada, efling varnariðnaðar og áframhaldandi öflugur stuðningur við Úkraínu verða efst á blaði samkvæmt tilkynningunni.
„Ógnin frá Rússlandi og staða mála í Miðausturlöndum og á Hormússundi munu einnig setja mark sitt á umræður og samtöl á leiðtogafundinum,“ segir þar einnig.