Kristrún Frostadóttir: Hverjir vilja ekki leyfa þjóðinni að sjá samning? – Hverra hagsmuna gæta þeir? - DV

Það kostar mikla peninga að vera með litla og óstöðuga mynt eins og krónuna. Innganga í Evrópusambandið myndi strax, jafnvel áður en við tækjum upp evru, minnka þann kostnað. Það hefði mikil áhrif til hagsbóta fyrir neytendur og samkeppni að ganga inn í ESB. Samkeppni myndi aukast í dagvöru, eldsneytissölu, tryggingamarkaði og lánamarkaði. En þeir eru til sem hagnast á skorti á samkeppni og almenningur verður að velta því fyrir sér hverjir eru þarna úti sem vilja ekki einu sinni leyfa þjóðinni að sjá hvað er í samningnum og hagsmuna hverra eru þeir að gæta. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan - Kristrún Frostadóttir - 2 - 4
play-sharp-fill

Eyjan - Kristrún Frostadóttir - 2 - 4

„Eins og ég segi, það eru einhverjir sem eru búnir að gera upp sinn hug, vilja bara ekki tilheyra Evrópusambandinu, átta sig alveg á því að því fylgi kannski einhver fjárhagsleg þyngsli en finnst það bara þess virði og ég virði það. En nei núna sem byggir á því að fólk er hrætt við að fá eitthvað, hvað á ég að segja, óvart í fangið. Að við verðum óvart komin inn í Evrópusambandið, óvart einhvern veginn búin að taka upp eitthvað sem við komumst ekki aftur út. Það væri sárt að verða vitni að því vegna þess að maður veit það líka í gegnum tíðina, við sáum það til dæmis í Brexit-kosningunum síðast að það er stór hópur af fólki, sérstaklega ungu fólki í dag, sem hefði kosið með allt öðrum hætti. Ég hef séð einhverjar tölur þarna 70-80%, ég veit ekki, ég þori ekki að fara með rangt mál en þetta er alveg ofboðslega hátt hlutfall af ungu fólki sem sér eftir því hvernig það kaus í þeirri atkvæðagreiðslu.“

Og margir sjá eftir því einmitt að hafa ekki kosið í þeirri atkvæðagreiðslu.

„Já. Og þess vegna segi ég, maður á að virða þjóðarviljann, við gerum það sama hvernig fer, Við gerum það sama hvernig hlutföllin lenda, því við bara þurfum að fylgja þessari þjóðaratkvæðagreiðslu og við höfum sagt að hún sé bindandi. En við viljum auðvitað fá mikla þátttöku, við viljum að fólk sé vel upplýst og við viljum ekki, ég vil hvorki hræða fólk í að segja já né að það sé hrætt í að segja nei. En fólk þarf að gera sér grein fyrir því hvað það er að loka af með því að hafna þessu núna strax í fyrsta kasti. Og því tengdu þá finnst mér alveg mikilvægt núna í sumar að það eigi sér stað málefnaleg, efnisleg umræða um tækifærin sem felast líka í Evrópusambandinu, vegna þess að núna hefur þetta svolítið snúist um formið, hvernig þessi atkvæðagreiðsla kom til, hvað felst í henni. Ef að ég segi við fólk, þetta felst í að kanna valkosti og fólk segir eins og hvaða valkosti? Jú meðal annars í neytendamálum.

Stærsta einstaka ástæðan fyrir því að ég hef verið jákvæð gagnvart Evrópusambandsinngöngu og ég segi jákvæð vegna þess að ég er með mín skilyrði eins og allir aðrir. Ég væri ekki til í að segja já við hvaða samningi sem er og ég hef verið alveg hörð á því að stærsta einstaka málið sem ég líklega sé sem ástæðu til þess að kanna þennan möguleika eru samkeppnismál. Vegna þess að sko gjaldmiðlamálin, það er auðvitað stór partur og alveg rétt sem þú segir, það er kostnaðarsamt að vera með litla mynt. Okkur er að takast að halda genginu tiltölulega föstu með miklum tilkostnaði.“

Gríðarlegum tilkostnaði.

„Seðlabankinn er í rauninni, þrátt fyrir að vera á svokölluðu verðbólgumarkmiði, hálfpartinn að reka fastgengisstefnu. Þess vegna hefur flöktið verið lítið í gjaldmiðlinum af því að sumir segja: Við þurfum ekkert að ganga eða taka upp evru, það er svo lítið flökt hérna sko. En það er ástæða fyrir því. Það er mjög dýrt að gera það á meðan að ef við myndum ganga inn í Evrópusambandið og inn í anddyri evrunnar og þá myndum við fá stuðning frá Evrópska Seðlabankanum til þess að halda genginu stöðugu með fjárframlögum sem við myndum ekki þurfa að geyma hér í forðanum okkar. Þannig að bara það að halda óbreyttu ástandi, Ólafur, ef þú pælir í því, bara halda krónunni stöðugri án þess að vera búinn að taka upp evru, þá erum við strax búin að fá minnkandi kostnað við það ef við göngum inn í Evrópusambandið.

Það eru alls konar leiðir sem maður getur farið í að tala um gjaldmiðlamálin og fólk er með svona tilfinningarök gagnvart krónunni og hvort það eigi að vera svigrúm til að fella hana eða ekki. En látum það alveg til hliðar. Samkeppnismálin eru risamál á Íslandi. Þetta er lítið land, þetta er fámenn þjóð. Við erum auðvitað alltaf að vinna í því að vera með ákveðna stærðarhagkvæmni hérna sem er mjög eðlilegt. Undir venjulegum kringumstæðum væri hér ein verslunarkeðja, einn banki, eitt tryggingafélag af því að við erum með 400.000 manna samfélag. En það þýddi að við værum ekki með neina samkeppni þannig að við erum að rembast við að vera með samkeppni á litlum markaði en halda samt kostnaði niðri og þetta hefur gert það að verkum að íslenskir neytendur, þeir bara búa ekki við sömu aðstæður og neytendur í stærri löndum og stærsta einstaka hindrunin gagnvart erlendri samkeppni hérna inn á smásölumarkaði, nú er ég ekki að tala um auðlindamálin, ég er ekki að tala um orkumálin, ég er að tala um dagvöruna, ég er að tala um bensínið, ég er að tala um tryggingarnar, ég er að tala um lánamarkaðinn. Það er auðvitað að við erum ekki með stöðugan gjaldmiðil og þó að við séum að rembast við að halda honum stöðugum þá hefur það ekki trúverðugleika, það er bara ekki trúverðugt í augum erlendra fjárfesta. Mér finnst leiðinlegt að segja það vegna þess að maður vill auðvitað að við séum með trúverðugleika þarna en af einhverri ástæðu treysta erlendir aðilar sér ekki inn á þennan markað vegna þess að þeir telja ekki þess virði að þurfa að fjárfesta í gengisvörnum, þurfa að passa upp á flöktið, viðskiptakostnaðurinn við að skipta yfir í krónur og ég veit ekki hvað og hvað og það er engin tilviljun að þeir sem eru allt í einu núna farnir að beita sér gegn inngöngu, þeir hafi mögulega hagsmuni af því að þessi samkeppni eykst ekki. Ég bið bara íslenskan almenning að velta því fyrir sér hverjir eru þarna úti sem vilja ekki einu sinni leyfa þjóðinni að sjá hvað er í samningnum og hagsmuna hverra eru þeir að gæta.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
#ekki #frostadóttir #hverjir #kristrún #vilja

Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/21/kristrun-frostadottir-hverjir-vilja-ekki-leyfa-thjodinni-ad-sja-samning-hverra-hagsmuna-gaeta/

📰 Aðrar fréttir

Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 0
Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Í ákæru segir að brotin hafi verið framin í flugi Ice...
Verða að viður­kenna barn getið með staðgöngumæðrun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Verða að viður­kenna barn getið með staðgöngumæðrun - Vísir
Þetta er niðurstaða dóms dómstólsins í dag, þar sem hann svaraði spurningum sem Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði til hans varðandi túlkun tilskipunar og...
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv - Vísir
Tómas kvaðst hafa starfað á fjölmiðlum í tuttugu ár. Honum þætti erfitt að sætta sig við að fá ekki lengur sjónvarpsfréttir klukkan hálfsjö á kvöldin,...
Við­ræður VR við SA á leið inn „blind­götu“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Við­ræður VR við SA á leið inn „blind­götu“ - Vísir
Innan við sólarhringur er nú þar til frestur til þess að segja upp kjarasamningum VR, LÍV og fagfélaganna annars vegar og SA hins vegar rennur út. Fél...
Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki - Vísir
Opnað var fyrir umsóknir til úthlutunarnefndar í ágúst og rann frestur til að sækja um út þann 1. september. Úthlutunarreglum var breytt í sumar en sí...
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 0
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
📅 07.10.2026 👁️ 1
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartava...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Gera þarf kennara að stórstjörnum
📅 07.10.2026 👁️ 1
Gera þarf kennara að stórstjörnum
Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann seg...
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
📅 07.10.2026 👁️ 0
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð til að aðskil...
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föðu...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
📅 07.10.2026 👁️ 0
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
The Met Police say a "spontaneous protest" was staged outside the office of the Board of Deputies.
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
France protests: Use of stun grenades suspended
📅 07.10.2026 👁️ 0
France protests: Use of stun grenades suspended
France has halted the use of stun grenades after a 15-year-old boys hand was blown off during student protests.
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
📅 07.10.2026 👁️ 0
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
Robert Sabat is given a 17-year-minimum jail term for the fatal stabbing of his former partner.
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
📅 07.10.2026 👁️ 0
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
Sir Kevin Sinfield is knighted by the Prince of Wales at Windsor Castle.
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 1
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 1
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 1
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 1
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 1
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ...
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað...
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
„Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslensk...
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
Jay Merchant, Jonathan Mathew, Philippe Moryoussef, Alex Pabon, Colin Bermingham had their convictions overturned by the Court of Appeal.
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Seðlabankastjóri sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót og segir skammsýni að legg...
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
📅 07.10.2026 👁️ 2
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
Átta hið minnsta eru særð eftir hnífaárás í borginni Ostrołęka í Póllandi í morgun. Samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins eru fimm hinna særðu á barns...
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
Það var líf og fjör á þessari tvöföldu sýningaropnun. Sigurður Guðjónsson sýnir Hulu, seiðmagnað myndbandsverk sem er tekið í einni samfelldri, sextíu...