Kæri formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson
Drenglyndi mótmælir harðlega þeim ummælum sem höfð voru eftir þér, á Visi, þar sem þú lýsir áhyggjum foreldra sem „einhverjum skoðunum eða hugmyndum.“ Slíkt orðalag ber með sér lítilsvirðingu gagnvart foreldrum sem taka ábyrgð sína alvarlega og vilja hafa rödd í menntun og uppeldi barna sinna.
Margir foreldrar hafa áhyggjur af því að umdeildar hugmyndir um kynvitund og skyld málefni séu kynntar börnum í skólum á þann hátt að ekki sé nægilegt tillit tekið til mismunandi lífsskoðana og gildismats fjölskyldna. Hvort sem þú ert sammála þeim áhyggjum eða ekki, þá eru þær ekki „einhverjar hugmyndir“ heldur afstaða sem byggir á sannfæringu, lífsgildum, ábyrgðarkennd og lögmætu hlutverki foreldra.
Okkur finnst það sérstaklega áhyggjuefni þegar formaður kennara talar um foreldra eins og þeir séu vandamál sem þurfi að takast á við, fremur en mikilvæga samstarfsaðila skólans. Traust milli heimila og skóla byggist á gagnkvæmri virðingu. Ummæli af þessu tagi grafa undan því trausti, valda núningi.
Eiga ekki að sitja á hliðarlínunni
Foreldrar eru ekki aukaaðilar í lífi barna sinna. Þeir bera frumábyrgð á uppeldi þeirra og hafa bæði rétt og skyldu til að fylgjast með því sem börnum þeirra er kennt. Þegar foreldrar óska eftir því að börn þeirra taki ekki þátt í ákveðnu efni vegna samvisku-, trúar- eða lífsskoðanaástæðna er eðlilegt að á þá sé hlustað af virðingu, ekki talað niður til þeirra.
Við hvetjum þig því til að draga þessi ummæli til baka eða að minnsta kosti viðurkenna að þau voru óheppileg og sýna ekki þá virðingu sem foreldrar eiga skilið.
Einn af núningspunktum milli heimilis og skóla er vera baráttu- og hagsmunasamtaka trans-fólks í skólakerfinu, auk alls kyns tákn fyrir baráttu þeirra. Vert er að minna formanninn á, að jafn- og mannréttindi eru kennd í gengum allar námsgreinar og því óþarfi að bera hugmyndafræði sem stenst hvorki sannleik né raunveruleikann inn í skólakerfið dulbúið sem jafn- og mannréttindafræðsla.
Til að fækka núningspunktum væri ráð að afþakka komu þessara samtaka inn í skólana og fjarlægja tákn fyrir baráttu þeirra.
Virðingarfyllst,
F.h.Drenglyndi
Helga Dögg
Ina Steinke
Viðar Orri