Kranakall skattakóngur 2025 á Íslandi

Krani frá DS lausnum
Mynd: DS Lausnir
Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri DS Lausna, er skattakóngur Íslands fyrir árið 2025. Hann greiddi 942 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt og námu fjármagnstekjurnar því tæplega 4,3 milljörðum króna. Viðskiptablaðið greinir frá.
Daníel stofnaði DS Lausnir árið 2002 og átti félagið að fullu þar til Fagkaup keypti 70 prósenta hlut í því í fyrra. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu, útleigu og þjónustu byggingakrana.
DS Lausnir veltu 2,5 milljörðum króna árið 2025 og skiluðu 581 milljón króna hagnaði. Eignir félagsins námu 3,5 milljörðum króna í árslok og eigið fé var um þrír milljarðar króna.