Sjálfstæðisflokkurinn er á hraðri siglingu, Viðreisn sækir í sig veðrið og samkvæmt túlkun Baldurs Héðinssonar, stærðfræðings sem gerir Kosningaspá Vísis, eru það einkum Miðflokkurinn og Samfylkingin sem finna fyrir því.
Samfylking í hættu á að missa fimmta borgarfulltrúann
Stóra myndin í spánni er annars vegar sú að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aukið forskot sitt verulega og nálgast nú tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna, og hins vegar að það breytir því hvar síðustu sætin í borgarstjórn lenda. Sjálfstæðisflokkurinn nálgast þrjátíu prósenta fylgi samkvæmt spánni og Samfylkingin er komin niður fyrir tuttugu prósent.
Á sama tíma eru meiri líkur en minni á að Sjálfstæðisflokkurinn fái sjö borgarfulltrúa og áttundi maður listans, Bjarni Fritzson, er kominn með tæplega helmingslíkur á kjöri. Samfylkingin, sem fyrir mánuði stefndi á sex menn, er nú í þeirri stöðu að fimmti maður listans, Stein Olav Romslo, er kominn niður í um sextíu prósent líkur á kjöri.
Sveiflurnar breyta víglínunni
Baldur segir að það sem skipti mestu máli núna sé ekki aðeins hver mælist stærstur heldur hvernig sveiflurnar breyti sjálfri víglínunni. Hann bendir á að síðustu sætin sem nú séu helst undir pressu séu annað sæti Miðflokksins, fimmta sæti Samfylkingarinnar og þriðja sæti Viðreisnar. Um leið sé baráttan ekki lengur jafn mikið bundin við flokka sem hafi verið að dansa á mörkum þess að ná inn einum manni.