Konráð Guðjónsson hagfræðingur segir að ný grein Þórólfs Matthíassonar staðfesti í raun þær niðurstöður sem hann hafi áður kynnt um matvöruverð á Íslandi.
Í færslu á Facebook þakkar Konráð Þórólfi fyrir að hafa farið yfir útreikninga sína og segir að eftir að hafa fengið gögn og útskýringar frá sér hafi Þórólfur ekki gert athugasemdir við meginniðurstöðuna um að matvæli á Íslandi séu um 40 prósent ódýrari miðað við ráðstöfunartekjur en að meðaltali í Evrópusambandinu.
Konráð segir að gagnrýni Þórólfs hafi þess í stað beinst að öðrum mælikvarða, þar sem matvælaverð er borið saman við almennt verðlag innan hvers lands.
„Það er hárrétt og nákvæmlega það sem ég var að reyna að koma á framfæri,“ skrifar Konráð og vísar til þess að slíkur samanburður segi ekki til um hvort matur sé ódýr eða dýr í alþjóðlegum samanburði, heldur hvernig matvælaverð stendur gagnvart öðru verðlagi innan sama lands.
Þrjár meginniðurstöður
Konráð segir að niðurstöðurnar standi enn óbreyttar:
- Matur og önnur vara sé dýr á Íslandi í beinum alþjóðlegum verðsamanburði.
- Vegna hárra ráðstöfunartekna sé matvara og flest önnur vara og þjónusta hlutfallslega ódýr miðað við tekjur.
- Matvælaverð sé fremur lágt miðað við almennt verðlag innan Íslands.
Með færslunni birti Konráð einnig mynd sem sýnir samanburð Evrópuríkja á matvælaverði miðað við ráðstöfunartekjur, meðaltekjur samkvæmt þjóðhagsreikningum og almennt verðlag. Þar kemur fram að Ísland er í öðru sæti þegar matvælaverð er borið saman við ráðstöfunartekjur, í sjöunda sæti miðað við þjóðhagsreikninga og í fjórða sæti þegar matvælaverð er metið miðað við almennt verðlag.
Konráð segist hlakka til að nota íslensku tekjurnar sínar til að kaupa mat á meginlandi Evrópu í sumar og vonast til að umræðan um efnahagslega stöðu Íslands fari fram á málefnalegum grunni á næstu vikum.