Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness skoðar nú hvort tilefni sé til þess að beita eigendur hunds af gerðinni miniature english bull terrier sektum fyrir að fara með hundinn úr landi þegar til stóð að aflífa hann.
Hundurinn hafði orðið uppvís að því að bíta annan hund með svo alvarlegum hætti að aflífa þurfti hinn síðarnefnda og taldi Heilbrigðiseftirlitið hundinn svo hættulegan að réttast væri að hann yrði einnig aflífaður.
Úrskurði Heilbrigðiseftirlitsins hefur þó ekki enn verið framfylgt þar sem hundurinn er ekki á landinu, en Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, segist ekki hafa lent í því áður að dýr séu flutt úr landi þegar til stendur að aflífa þau.
Hann segir að nú sé til skoðunar hvaða úrræðum Heilbrigðiseftirlitið muni beita til að framfylgja úrskurðinum en taka ber fram að eigendum hundsins var lögum samkvæmt heimilt að flytja hann úr landi á meðan úrskurður hafði ekki verið kveðinn upp.
Nánar má lesa um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag