Komugjald á heilsugæslu verður hækkað aftur í 1.000 krónur 1. ágúst og sérstakt, hærra gjald verður lagt á komu vegna sjúkra-, iðju- og talþjálfunar.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að endurskoðun komugjalda sé nauðsynleg í ljósi verðlagsþróunar og til að mæta vaxandi kostnaði við þjónustuna samfara öldrun þjóðarinnar.
Engar verðlagsuppfærslur hafi verið gerðar síðan 2008 og raunar hafi gjöldin lækkað í krónum talið.
Þá segir að útgjöld vegna sjúkraþjálfunar hafi vaxið hratt frá undirritun samnings milli Sjúkratrygginga Íslands og Félags sjúkraþjálfara í maí 2024. Fjárlagaliður þjálfunar stefni í 3,4 milljarða króna halla ef ekkert verði að gert.
Helstu breytingarnar verða eftirfarandi:
- Komugjöld í heilsugæslu hækka hjá almennum sjúkratryggðum úr 500 krónum í 1.000. Það gildir einnig fyrir sálfræðiþjónustu, leghálsskimanir og röntgenmyndatökur af brjóstum vegna krabbameinsleitar. Aldraðir, öryrkjar og börn greiða ekki komugjald.
- Utan dagvinnutíma heilsugæslu verða komugjöld 3.500 krónur í stað 3.100. Aldraðir, öryrkjar og börn greiða ekki komugjaldið.
- Innheimt verður komugjald fyrir þjónustu í sjúkrabíl á vettvangi, svo sem þegar sjúkrabílar eru staðsettir á útihátíðum eða á svæðum langt frá næstu heilsugæslu. Gjaldið á ekki við þegar sjúkrabíll er kallaður til.
- Tekið verður upp sérstakt komugjald fyrir sjúkraþjálfun, talþjálfun og iðjuþjálfun. Almennt komugjald verður 1.500 krónur, 1.000 krónur fyrir aldraða og 500 krónur fyrir öryrkja. Komugjaldið verður ótengt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu og verður því hið sama óháð fjölda koma.
Þá segir að í undirbúningi séu gagngerar breytingar á gildandi tilvísunarkerfi til sjúkraþjálfara þar sem krafa um tilvísun læknis verði felld niður og mat á þörf fyrir þjálfun verði þess í stað í höndum sjúkraþjálfara.