Koma hefði mátt í veg fyrir morð á nokkrum ungabörnum, sem hjúkrunarfræðingurinn Lucy Letby var sakfelld fyrir, á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Bretlandi.
Letby var sakfelld árið 2023 fyrir að myrða sjö börn á sængurlegudeild sjúkrahússins og fyrir tilraun til að myrða sjö til viðbótar. Hún afplánar 15 lífstíðardóma í fangelsi.
Rannsókn á sjúkrahúsinu og þátt þessi og stjórnenda þess í málinu leiðir í ljós að stjórnendur hafi ekki gripið til aðgerða gegn Letby, þrátt fyrir að samstarfsfólk hennar hafi ítrekað reynt að gera þeim viðvart um grunsamlega hegðun hennar. Þá var Letby ekki send í leyfi á meðan alvarlegar ásakanir henni á hendur voru til rannsóknar.
Formaður rannsóknarnefndar á vegum yfirvalda segir ómögulegt að vita hversu mörg dauðsföll hefði mátt koma í veg fyrir. Sjúkrahúsið og stjórnendur þess hefðu ekki sýnt foreldrum, rannsakendum og eftirlitsaðilum hreinskilni við rannsókn málsins.
Einnig segir hún að sjúkrahúsið hafi virst uppteknara af því að flýja ábyrgð í málinu og forðast slæmt umtal í fjölmiðlum heldur en að leiða sannleikann í ljós í máli Letby. Formaður rannsóknarnefndarinnar segir þetta alþekkt meðal stjórnenda víðar í breska heilbrigðiskerfinu.
Fyrsta dauðsfallið sem Letby var sakfelld fyrir varð í júní 2015 og næstu 12 mánuði verða nokkur önnur dauðsföll og óvænt, alvarleg atvik á sængurlegudeild Countess of Chester-sjúkrahússins. Letby var handtekin um mitt ár 2018, en látin laus og svo handtekin nokkrum sinnum til viðbótar áður en hún var ákærð. Hún var að lokum dæmd árið 2023 eins og fyrr segir.