Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að þegar lögreglu bar að garði hafði hún uppi á öðrum þeirra sem segir hinn hafa ógnað sér með hníf. Sá maður hafði þegar yfirgefið vettvang en hann var seinna fundinn og yfirheyrður. Skúli segir manninn vera á fertugsaldri og hann hafi verið látinn laus að skýrslutöku lokinni.
Samkvæmt lögreglu hafi mennirnir farið að rífast, annar hefði hótað að berja hinn og reynt að stinga hann. Síðan hafi hann flúið vettvang. Manninum sem var ógnað hlaut enga alvarlega áverka.