Jürgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool og Dortmund, gæti verið á leiðinni í nýtt stjórastarf.
TalkSport greinir frá því að Al-Ittihad í Sádi-Arabíu sé reiðubúið að gera Klopp að launahæsta stjóra heims.
Þjóðverjinn hefur undanfarna mánuði starfað fyrir Red Bull-samsteypuna sem á fjölmörg íþróttafélög um allan heim.
Klopp, sem er 58 ára, hefur einnig verið orðaður við þýska landsliðið.