Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París - Vísir

Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París - Vísir

Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París - Vísir

Andrea ræddi við blaðamann um ævintýrin og daglega lífið í París hingað til.

Andrea elskar hversdagsleikann í París.Aðsend

Hvað varð til þess að þú fluttir út og hvar býrðu?

Ég hef lengi haft þann draum að fara í meistaranám í kjarnorkuverkfræði og Frakkland er einn besti staðurinn til að læra það. Ég ætlaði mér samt aldrei sérstaklega að flytja til Frakklands. Þegar kærasti minn flutti út fór ég að skoða möguleikana betur og sótti þá um í skóla þar.

Ég er núna smám saman að flytja allt dótið mitt út til Parísar og á síðasta flugið mitt út um miðjan ágúst. Eins og staðan er í dag búum við í 15. hverfi, en erum á næstunni að flytja inn í nýja íbúð í 1. hverfi, sem verður algjör draumastaðsetning.

Andrea og Styrkár á fallegum degi í París.Aðsend

Hvað ertu að gera þar?

Ég var nýlega að útskrifast úr orkuverkfræði og hef lengi haft mikinn áhuga á kjarnorku, þannig næsta skref hjá mér er meistaranám í kjarnorkuverkfræði. Ég ætla að byrja á því að einbeita mér algjörlega að náminu og ekki vinna með því, allavega til að byrja með.

Ég veit í rauninni ekki alveg hvað bíður mín úti og það er bæði ótrúlega spennandi og pínu stressandi á sama tíma, sérstaklega tengt náminu. Ég veit ekki hvort það verður erfiðara, léttara eða í samræmi við það sem að ég er búin að vera að gera hingað til. Maður er að fara inn í alveg nýjan kafla, kynnast nýju fólki og aðlagast allt öðru umhverfi.

Andrea er að hefja nýjan og spennandi kafla í París í haust.Aðsend

Hefurðu búið annars staðar erlendis?

Já, ég hef áður búið erlendis. Ég bjó í Lettlandi með fjölskyldunni minni frá 3. bekk og alveg upp í 6. bekk. Á þeim tíma fann ég samt lítið fyrir því að vera búsett í öðru landi þar sem ég var svo ung og hafði fjölskylduna alltaf í kringum mig.

Núna er staðan allt önnur. Í fyrsta skiptið er ég að flytja alveg að heiman og vera langt frá fjölskyldunni minni, þannig að þetta er allt öðruvísi upplifun. Ég er í raun ekki enn búin að átta mig á því að ég sé að flytja út.

Andrea bjó með fjölskyldu sinni í Lettlandi í þrjú ár.Aðsend

Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér?

Daglega lífið mitt í augnablikinu er eiginlega bara frekar fullkomið. Styrkár fer í vinnuna á morgnana og þá leyfi ég mér aðeins að sofa út áður en að við hittumst í hádegismat.

Eftir það eyði ég deginum oft í að rölta um borgina, kíkja í búðir, sjoppa aðeins, fara stundum í nudd og bara njóta þess að hafa tíma fyrir sjálfa mig.

Andrea nýtur þess að eiga skemmtilega daga í París áður en hún hellir sér í námið í haust.Aðsend

Þegar Styrkár kemur heim á kvöldin förum við oft út að borða eða höfum það notalegt heima og eldum eitthvað saman. Ég er því bara að reyna að njóta þessa tíma í botn áður en að ég byrja af fullum krafti í náminu.

Það er hins vegar búið að vera svolítið erfitt að venjast því að hlaupa í París. Á Íslandi gat ég hlaupið tíu kílómetra án þess að stoppa einu sinni, en hérna eru umferðarljós út um allt og stundum finnst mér ég vera meira að bíða á rauðu en að hlaupa.

Hvað er skemmtilegast við lífið úti?

Það skemmtilegasta við lífið úti er líklega hvað margt nýtt er framundan. Ég er að fara að hefja meistaranám í kjarnorkuverkfræði sem er eitthvað sem ég hef lengi stefnt að, en ég hafði í raun enga hugmynd um hvað ég myndi gera ef ég kæmist ekki inn þannig eina í stöðunni var eiginlega bara að komast inn. Því er svolítið óraunverulegt að vera komin á þann stað að þetta sé allt að verða að veruleika.

Svo finnst mér sérstaklega gaman að vera að byrja nýjan kafla með kærastanum mínum og fá að upplifa París saman. Hver vill ekki prófa að búa í París? Það er alltaf eitthvað að gerast, maður finnur alltaf nýtt kaffihús, nýjan veitingastað eða bara nýtt hverfi til að skoða. Borgin hættir einhvern veginn aldrei að koma manni á óvart.

Andrea og Styrkár eru dugleg að njóta lífsins úti.Aðsend

En mest krefjandi?

Mest krefjandi er án efa að flytja frá fjölskyldunni og vinum. Ég er mjög heimakær og hélt eiginlega alltaf að ég myndi aldrei flytja að heiman og ef ég myndi einhvern tímann flytja að heiman, þá myndi ég taka fjölskylduna mína með mér. En þannig virkar þetta auðvitað ekki. Ég er ekki bara að flytja í næstu götu eða í annað hverfi, heldur í annað land. Það er mest krefjandi parturinn af þessu öllu.

Ég veit að það eru litlu hlutirnir sem að ég á eftir að sakna mest. Að koma heim og það er enginn frammi að hlæja yfir einhverju í sjónvarpinu, enginn sem kíkir inn til mín bara til að slúðra aðeins, og að þurfa allt í einu sjálf að sjá um hlutina sem mamma hefur alltaf gert án þess að ég hafi þurft að hugsa út í það. 

Sambandið okkar mömmu er einstakt og ég er nokkuð viss um að það verði stærsta áskorunin að venjast því að hafa hana ekki alltaf rétt hjá mér.

Andrea og mamma hennar eru miklar vinkonur.Aðsend

Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til?

Það sem að stendur líklegast mest upp úr hjá mér hingað til er þegar ég fékk staðfest að ég hefði komist inn skólana sem ég sótti um. Þegar ég fór að kynna mér námið sá ég að það eru ótrúlega góðir skólar í Frakklandi, sérstaklega í kringum París, en ég sá líka að það væri mjög erfitt að komast inn. 

Ég var samt sem áður ekki með neina hugmynd um hvað ég myndi gera ef ég kæmist ekki inn. Fyrst fékk ég svar frá skólanum í Nantes og ég var í skýjunum. Síðan, ekki löngu síðar, kom svarið frá Paris-Saclay. Ég man enn hvað ég var glöð og jafnvel smá hissa, því ég hafi ekki þorað að vera með of miklar væntingar. Þar sem að planið hafði alltaf verið að búa með Styrkári í París var ákvörðunin auðveld.

Andrea komst inn í tvo skóla úti í Frakklandi og var valið henni auðvelt.Aðsend

Hvaða hverfi er í uppáhaldi og af hverju?

6. hverfi er klárlega í uppáhaldi hjá mér. Mér finnst hverfið hafa svo rólega stemningu, fullt af litlum kaffihúsum og fallegum götum. Það er eitthvað mjög Parísarlegt við þetta hverfi, það er alltaf líf í þessu hverfi án þess að vera með of mikil læti. Mér finnst líka skemmtilegt hvað það eru margar fallegar byggingar og litlar búðir sem leynast þar.

Einnig er hægt að fara upp á bygginguna Montparnasse sem er á milli 6. og 15. hverfis og sjá yfir alla borgina. Það eru einmitt svona staðir sem fær mann til að skilja af hverju margir verða ástfangnir af París.

Útsýnið í Montparnesse er sannarlega sjarmerandi.Aðsend

Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti?

Að mínu mati er mjög erfitt að finna gott kaffi í París, sem kom mér eiginlega svolítið á óvart. En þegar maður finnur góða staði verður maður háður þeim. Saint Pearl er eitt af mínum uppáhalds kaffihúsum. Staðurinn er lítill, gamall og notalegur og er auðvitað í sjötta hverfinu.

Þegar kemur að veitingastöðum finnst mér erfitt að gera upp milli tveggja, þannig að ég á tvo uppáhalds. Lapérouse er fínni veitingastaðurinn. Þetta er einn af elstu og sögufrægustu veitingastöðum Parísar. 

Ein skemmtileg staðreynd þaðan er að speglarnir eru rispaðir vegna þess að sagan segir að konur á sínum tíma áttu að hafa prófað hvort demantarnir sem að þær fengu í gjöf væru ekta með því að rispa þá í speglana.

Maturinn er svo auðvitað alveg ótrúlegur og staðurinn er alltaf upplifum út af fyrir sig. Hinn uppáhaldsstaðurinn minn er Ma Bourgogne sem er allt öðruvísi. Það er minni og afslappaðri staður og maður fær alltaf alveg ótrúlega góðan mat þar. Þetta er svona staður sem að maður getur alltaf treyst á og mig langar alltaf að fara aftur.

Ma Bourgogne er í uppáhaldi hjá Andreu.Aðsend

Hvernig er draumadagur fyrir þig úti?

Draumadagurinn minn er eiginlega bara dagur þar sem að ég er ekki með neitt plan. Mér finnst oft bestu dagarnir byrja á því að ætla bara í einn kaffibolla og enda svo á því að vera búin að rölta um hálfa París og borða ótrúlega góðan mat. Það sem að ég elska mest við París er að maður þarf ekki alltaf að gera eitthvað svakalegt til að eiga fullkomin dag.

Morgunstund á Cafe de Flore. Andrea segir að París sé svona borg þar sem þú þarft ekki að gera mikið til að eiga draumadag.Aðsend

Hvað er skemmtilegast við lífið úti?

Það skemmtilegasta við lífið úti er kannski að átta sig á því hvað heimurinn er í raun stór og hvað það eru ótrúlega margir möguleikar í boði. Það er svo auðvelt að sökkva inn í hversdagsleikann á Íslandi og festast í sömu rútínu án þess að gera sér grein fyrir því.

Sérstaklega þegar maður er með stór markmið og drauma þá held ég að það sé mikilvægt að fara aðeins út fyrir þægindarammann og kanna nýja möguleika. Mér finnst líka mjög skemmtilegt hvað maður lærir mikið um sjálfan sig og að vita í raun ekki alveg hvað bíður manns næst.

Hefurðu fundið fyrir heimþrá?

Ekki hingað til, en ég er nokkuð viss um að hún eigi eftir að koma þegar ég verð alveg flutt út. Eins og ég nefndi áður þá er ég mjög heimakær og finnst erfitt að vera lengi frá fjölskyldunni minni, sérstaklega mömmu. Ég held samt að það sé bara hluti af því að flytja langt að heiman.

Sem betur fer er ekki erfitt að ferðast til Parísar og maður getur alltaf hoppað í flugvél og heimsótt fólkið sitt eða fengið heimsókn til sín. En ég held að það verði örugglega mjög skrýtið þegar ég átta mig á því að ég get ekki skroppið heim í mat eða hitt vinkonur mínar.

Andrea ásamt föður sínum. Hún er náin fjölskyldu sinni og vinum og kvíðir því smá að vera frá þeim.Aðsend

Hvað er framundan?

Framundan er fyrst og fremst að hefja meistaranámið mitt og gefa því allt sem ég á. Ég hlakka mikið til að kynnast nýju fólki, takast á við nýjar áskoranir og sjá hvert þetta leiðir mig.

Ég er ekki með allt skipulagt niður í smæstu smáatriðin og veit í raun ekki nákvæmlega hvar ég verð eftir nokkur ár. Núna ætla ég bara að njóta þess að búa með kærastanum mínum í París og læra það sem að ég hef alltaf viljað að læra og vera opin fyrir öllum þeim tækifærum sem koma á leiðinni.

Styrkár og Andrea ætla að flytja í 1. hverfi í haust og hlakka mikið til.Aðsend

Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti?

Það sem að hefur komið mér mest á óvart er hvað maður venst ótrúlega fljótt nýju lífi. Ég hélt að það tæki marga mánuði að líða eins og maður ætti heima hérna, en áður en ég vissi af var ég farin að eiga mína staði, mín kaffihús og mína rútínu þó að ég sé ekki einu sinni endanlega flutt út.

 Það er svolítið skrýtin tilfinning að ganga um í París og hugsa allt í einu: „Já, ég er að fara að búa hérna“.

Hvað er það steiktasta eða fyndnasta sem þú hefur lent í úti?

Það hlýtur að vera dagurinn 30.05.26 þegar Champions league final 2026 fór fram. Ég er alls ekki mikil fótboltamanneskja og hef aldrei á ævinni horft á heilan leik, en þennan dag ákvað ég í fyrsta skiptið að horfa á PSG á móti Arsenal með Styrkári. 

PSG vann og ég hélt að kvöldið myndi enda með góðum mat og vínglasi svo heim. Ég hafði mjög rangt fyrir mér.

Við fórum á veitingastað sem heitir La Flamme, stað sem ég mun aldrei gleyma. Við vorum búin að panta matinn og allt leit vel út þar til að það var skotið táragasi beint inn á veitingastaðinn. Við sátum innst í horninu og allt í einu byrjuðu allir að hósta og hlaupa í áttina að okkur, sem meikaði engan sens. Af hverju hlupu ekki allir út?

Að lokum komumst við út, hálfblind að reyna að ná andanum aftur og þá fattaði ég að ég hafði skilið töskuna mína eftir inni. Auðvitað voru lyklarnir að íbúðinni í töskunni. Við fórum því aftur inn í allt ruglið með pappír fyrir andlitinu og reyndum að finna hana.

Taskan var hins vegar horfin. Svo mundi ég að það voru AirPods í töskunni og Find My iPhone sagði okkur að þau væru enn á staðnum, en taskan fannst aldrei.

Þá tók við sex tíma leiðangur um París í leit að hóteli. Allt var fullbókað. Ég held, án þess að ýkja, að við höfum hringt í eða labbað inn á um fjörutíu hótel, allt frá eins stjörnu upp í fimm stjörnu, og alls staðar var svarið það sama. Ekkert laust.

Sirka fjögur um nóttina stóðum við loksins fyrir utan húsið okkar, en komumst auðvitað ekki inn. Þá sáum við hostel beint á móti. Ég var eiginlega búin að sætta mig við að gista úti, en við ákváðum samt að prófa með enga von á að fá herbergi en þá var eitt herbergi laust og við fengum loksins herbergi og fengum það frítt vegna þess að maðurinn í afgreiðslunni vorkenndi okkur svo mikið.

Þetta var líklegast fyrsti og síðasti fótboltaleikurinn minn á ævinni.
Fyrsti og eini fótboltaleikurinn sem Andrea horfði á endaði með ósköpum.Aðsend

Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig?

Þetta er mjög erfið spurning. Ég held alltaf að ég muni enda aftur á Íslandi, enda er ég mjög heimakær og fjölskyldan mín er þar. En ég er líka búin að læra að maður á aldrei að segja aldrei. Ef einhver hefði sagt mér fyrir nokkrum árum að ég myndi búa í París hefði ég líklega ekki trúað því. Þannig að hver veit? Kannski verð ég á Íslandi eftir nokkur ár, kannski annars staðar.

#draumurinn #kjarnorkuverkfræði #parís #rætist #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262900551d/kjarnorkuverkfraedi-draumurinn-raetist-i-paris

📰 Aðrar fréttir

Móðir Ey­þórs Darra: „Hrað­akstur er á­kvörðun“ - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 2
Móðir Ey­þórs Darra: „Hrað­akstur er á­kvörðun“ - Vísir
Fyrir fimmtán árum lést Eyþór Darri Róbertsson þegar bíll sem hann var farþegi í hafnaði á húsvegg við Geirsgötu. Ökumaðurinn var dæmdur fyrir manndrá...
Er þetta opinber afstaða Íslands? Sendiherra Íslands viðrar kröfur um Kalíníngrad, Kúrileyjar og sæti Rússa í Öryggisráðinu
📅 15.11.2026 👁️ 1
Er þetta opinber afstaða Íslands? Sendiherra Íslands viðrar kröfur um Kalíníngrad, Kúrileyjar og sæti Rússa í Öryggisráðinu
Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands, birti færslu á X í gær, þar sem hann spyr um mögulegar evrópskar kröfur í friðarviðræðum við Rússland. Hann telur...
Safety concerns after beachfront promenade collapses in Gran Canaria
📅 15.11.2026 👁️ 2
Safety concerns after beachfront promenade collapses in Gran Canaria
A beachfront promenade in Gran Canaria is to undergo a safety assessment after sections collapsed onto La Laja beach.Las Palmas council has commission...
Íran réðst að ratsjárkerfi Bandaríkjahers
📅 15.11.2026 👁️ 3
Íran réðst að ratsjárkerfi Bandaríkjahers
Íranski byltingarvörðurinn gerði drónaárás á herstöð Bandaríkjahers í Persaflóaríkinu Barein.Sírenur ómuðu og bareinsk yfirvöld birtu viðvaranir á sam...
Krakkatía vikunnar: Mör­gæsir, leður­blaka og hnetu­smjör - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 2
Krakkatía vikunnar: Mör­gæsir, leður­blaka og hnetu­smjör - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Ex-Met Police inspector lied about wife's death in Barbados hotel room, BBC learns
📅 15.11.2026 👁️ 1
Ex-Met Police inspector lied about wife's death in Barbados hotel room, BBC learns
Warren Arter faced claims of sexually exploiting crime victims - his wife was found in a blood-stained room.
Svindlaði á hæfniprófi með snjallgleraugum og gervigreind
📅 15.11.2026 👁️ 1
Svindlaði á hæfniprófi með snjallgleraugum og gervigreind
Suðurkóreskur maður hefur viðurkennt að hafa svindlað á hæfniprófi fyrir skattaendurskoðendur með aðstoð snjallgleraugna og gervigreindar.Maðurinn fék...
Jósk kirkja föl fyrir eina krónu
📅 15.11.2026 👁️ 2
Jósk kirkja föl fyrir eina krónu
Kirkja í Danmörku gæti verið föl fyrir eina krónu. Það er að minnsta kosti það sem Morten Graversen, formaður barna- og fræðslunefndar sveitarfélagsin...
Judge temporarily blocks Trump from closing Washington DC golf course for renovation
📅 15.11.2026 👁️ 2
Judge temporarily blocks Trump from closing Washington DC golf course for renovation
It is the latest development in a months-long challenge to the president's plans for East Potomac Golf Links.
Zelensky segir SpaceX ljúga um Starlink-tengingu
📅 15.11.2026 👁️ 2
Zelensky segir SpaceX ljúga um Starlink-tengingu
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti heldur því fram að SpaceX ljúgi um takmarkanir sem settar hafa verið á Starshield-kerfið í því skyni að hægja á teng...
Felldu hátt settan Hamas-liða í loftárás
📅 15.11.2026 👁️ 3
Felldu hátt settan Hamas-liða í loftárás
Ísraelsher greindi frá því rétt í þessu að þeim hefði tekist að fella hátt settan liðsmann Hamas, Samir Abu Younis. Þetta kom fram í sameiginlegri yfi...
Hrúguðu grjóti gegn botnvörpuveiðum en vissu ekki af vindmylluáformum
📅 15.11.2026 👁️ 2
Hrúguðu grjóti gegn botnvörpuveiðum en vissu ekki af vindmylluáformum
Gríðarstórir grjóthnullungar sem umhverfisverndarsamtökin Greenpeace komu fyrir á hafsbotni í Norðursjó í vikunni lentu á uppbyggingarsvæði fyrir einn...
Hannah Fry feels 'unbelievably lucky' after cervical cancer treatment
📅 15.11.2026 👁️ 2
Hannah Fry feels 'unbelievably lucky' after cervical cancer treatment
The presenter says she has received a 'five-year clear' after having a hysterectomy in her thirties.
Holly Humberstone on her identity crisis - and struggle being compared to other pop stars
📅 15.11.2026 👁️ 4
Holly Humberstone on her identity crisis - and struggle being compared to other pop stars
The singer felt forced to compete with her female peers, until she realised the power of longevity.
Judo champion Teddy Riner shakes up French presidential race with surprise candidacy
📅 15.11.2026 👁️ 1
Judo champion Teddy Riner shakes up French presidential race with surprise candidacy
Teddy Riner is one of the most popular figures in modern-day France, and one in five voters say they could support him.
The lessons in handshaking and eye contact preparing pupils for the world of work
📅 15.11.2026 👁️ 4
The lessons in handshaking and eye contact preparing pupils for the world of work
Year 10 pupils are learning employability skills to reduce the number of young people who end up "Neet".
Beauty advent calendars can cost hundreds - but are they value for money?
📅 15.11.2026 👁️ 4
Beauty advent calendars can cost hundreds - but are they value for money?
Beauty calendars have become a Christmas staple and have become particularly popular with female shoppers.
Newspaper headlines: 'I was only 16' says alleged Brand victim, as disgraced comedian 'moved to soft jail'
📅 14.11.2026 👁️ 4
Newspaper headlines: 'I was only 16' says alleged Brand victim, as disgraced comedian 'moved to soft jail'
Russell Brand continues to feature on Sunday's front pages, nearly a week after he was jailed.
Vélarmar SpaceX gripu Starship-eldflaugina - Vísir
📅 14.11.2026 👁️ 6
Vélarmar SpaceX gripu Starship-eldflaugina - Vísir
Ferðin hófst í gærkvöldi, föstudaginn 12. nóvember, en Starship-geimfar SpaceX sneri aftur úr 22 klukkustunda ferð nú á tíunda tímanum en ferðin er sö...
Níu Írakar reknir úr embætti fyrir olíusmygl
📅 14.11.2026 👁️ 4
Níu Írakar reknir úr embætti fyrir olíusmygl
Ali al-Zaidi forsætisráðherra Íraks hefur rekið níu embættismenn vegna gruns um að þeir hafi stundað olíusmygl. Rannsókn á málinu var hafin í síðustu ...
Russell Brand: Alleged rape victim wants age of consent law changed
📅 14.11.2026 👁️ 5
Russell Brand: Alleged rape victim wants age of consent law changed
Mia Latter, who says she was 16 when she met the convicted rapist, wants a staggered age of consent.
New Orleans port sues tanker owners over cruise ship collision for $1m
📅 14.11.2026 👁️ 4
New Orleans port sues tanker owners over cruise ship collision for $1m
All cruise ship passengers and crew were accounted for, though 32 people were left with non-serious injuries from Friday's collision.
Roger Taylor segir skilið við Duran Duran - Vísir
📅 14.11.2026 👁️ 5
Roger Taylor segir skilið við Duran Duran - Vísir
Kom þetta fram í færslu sem var birt á Instagram-reikningi hljómsveitarinnar en þar er haft eftir Taylor, sem er 66 ára, að brotthvarfið væri „ein erf...
Watch: SpaceX catches part of its Starship rocket on return to Earth
📅 14.11.2026 👁️ 5
Watch: SpaceX catches part of its Starship rocket on return to Earth
SpaceX has performed the historic catch using mechanical arms nicknamed "chopsticks".
Tundur­dufl varð til þess að Óli fæddist í Skoru­vík - Vísir
📅 14.11.2026 👁️ 4
Tundur­dufl varð til þess að Óli fæddist í Skoru­vík - Vísir
„Það var heimsstyrjöldin,“ segir Óli í þættinum Um land allt. Tundurdufl hafði rekið upp í fjöruna neðan Skála. „Það verður gríðarleg sprenging og grj...
„Í ríki krónprinsins er dauði refsingin fyrir andóf“
📅 14.11.2026 👁️ 4
„Í ríki krónprinsins er dauði refsingin fyrir andóf“
Tveir karlmenn voru teknir af lífi í Sádí Arabíu í dag. Þeir voru sakfelldir fyrir margvísleg brot á borð við hryðjuverk á vegum erlendrar hreyfingar ...
SpaceX greip hluta Starship á leið til jarðar
📅 14.11.2026 👁️ 5
SpaceX greip hluta Starship á leið til jarðar
SpaceX tókst að grípa hluta Starship-eldflaugarinnar á leið til jarðar. Vélarmar á skotturni SpaceX í Texas gripu þennan efsta hluta eldflaugarinnar s...
More than 1,200 people reach El Hierro in 48 hours
📅 14.11.2026 👁️ 4
More than 1,200 people reach El Hierro in 48 hours
More than 1,200 people reached El Hierro in 48 hours as rescue teams responded to a fresh surge of boat arrivals.Maritime Rescue recorded eight operat...
Uppsetning á ljósleiðara olli kyrrsetningu flugvéla
📅 14.11.2026 👁️ 4
Uppsetning á ljósleiðara olli kyrrsetningu flugvéla
Vinna við að skipta út koparstreng fyrir ljósleiðara varð til þess að flugumferðarkerfið í Bandaríkjunum hrundi í gær. Þetta segir Sean Duffy, samgöng...
Uppsetning á ljósleiðara olli flugbanni
📅 14.11.2026 👁️ 4
Uppsetning á ljósleiðara olli flugbanni
Vinna við að skipta út koparstreng fyrir ljósleiðara varð til þess að flugumferðarkerfið í Bandaríkjunum hrundi í gær. Þetta segir Sean Duffy, samgöng...
Upp­færsla koparstrengs hafi valdið flugbanninu - Vísir
📅 14.11.2026 👁️ 5
Upp­færsla koparstrengs hafi valdið flugbanninu - Vísir
Kom þetta fram í ræðu Seans Duffy samgönguráðherra Bandaríkjanna en hann sagði bandarísk stjórnvöld ekki telja að um netárás hafi verið að ræða, þótt ...
Erfiður vetur fram undan í Úkraínu
📅 14.11.2026 👁️ 4
Erfiður vetur fram undan í Úkraínu
Árásirnar gera íbúum höfuðborgarinnar Kyiv lífið sífellt erfiðara og sumir hafa ákveðið að flýja land yfir vetrartímann.Árásir á orkumannvirki hafa me...
Til mikils að vinna að minnka skammtinn af lyfjasúpunni
📅 14.11.2026 👁️ 4
Til mikils að vinna að minnka skammtinn af lyfjasúpunni
Eldra fólki er gefið of mikið af lyfjum og þeir sem taka lyfin verða að vera meira vakandi og endurskoða skammtana reglulega. Þetta segir prófessor í ...
Vélmennahundur og sprengjusérfræðingar á æfingu
📅 14.11.2026 👁️ 4
Vélmennahundur og sprengjusérfræðingar á æfingu
Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar sér um skipulagningu æfingarinnar sem stendur fram í næstu viku. Æfingar fara að mestu fram innan öryggissvæðisins...
Hildur felldi Óslóartréð: „Þarf að vera í djúpri hnébeygju og beita smá afli og skynsemi“
📅 14.11.2026 👁️ 3
Hildur felldi Óslóartréð: „Þarf að vera í djúpri hnébeygju og beita smá afli og skynsemi“
Það hefur tíðkast síðan árið 1951 að Óslóarborg gefi Reykjavík veglegt jólatré ár hvert. Lengi vel var siglt með tréð frá Noregi til Íslands en síðan ...
Hildur felldi Óslóartréð: „Þarf að vera í djúpri hnébeygju og beita smá afli“
📅 14.11.2026 👁️ 4
Hildur felldi Óslóartréð: „Þarf að vera í djúpri hnébeygju og beita smá afli“
Það hefur tíðkast síðan árið 1951 að Óslóarborg gefi Reykjavík veglegt jólatré ár hvert. Lengi vel var siglt með tréð frá Noregi til Íslands en síðan ...
Undir­búa þúsundir jóla­gjafa fyrir úkraínsk börn og ung­menni - Vísir
📅 14.11.2026 👁️ 4
Undir­búa þúsundir jóla­gjafa fyrir úkraínsk börn og ung­menni - Vísir
Nú hefur öllum gjöfunum verið komið kyrfilega fyrir í gámum sem verða svo sendir til Úkraínu í tæka tíð fyrir jól. Ein þeirra sem taka frá tíma á hver...
„Setjum allt jóla­sveina­verkstæðið upp“ - Vísir
📅 14.11.2026 👁️ 5
„Setjum allt jóla­sveina­verkstæðið upp“ - Vísir
Nú hefur öllum gjöfunum verið komið kyrfilega fyrir í gámum sem verða svo sendir til Úkraínu í tæka tíð fyrir jól. Ein þeirra sem taka frá tíma á hver...
Wales 35-28 New Zealand: The magical day Wales beat the All Blacks again
📅 14.11.2026 👁️ 1
Wales 35-28 New Zealand: The magical day Wales beat the All Blacks again
Wales end a 73-year hoodoo against New Zealand with a win hailed as their greatest of all time.
Trilla varð fyrir miklu tjóni vegna veðurs: „Þetta leit skelfilega út“
📅 14.11.2026 👁️ 4
Trilla varð fyrir miklu tjóni vegna veðurs: „Þetta leit skelfilega út“
Brunavarnir Suðurnesja, lögregla og köfunarþjónusta komu að aðgerð í Sandgerðishöfn eftir að gat kom á trillu í höfninni vegna veðurs í gær. Þetta sta...
Aukin spenna að færast í samskipti Icelandair og stéttarfélaga
📅 14.11.2026 👁️ 4
Aukin spenna að færast í samskipti Icelandair og stéttarfélaga
Aukin spenna virðist tekin að færast í samskipti Icelandair og stéttarfélaga flugmanna og flugvirkja, tengd kjaraviðræðum. Félögin draga samningsvilja...
Philippines takes the crown in first Eurovision Song Contest Asia
📅 14.11.2026 👁️ 4
Philippines takes the crown in first Eurovision Song Contest Asia
BBC's Jonathan Head reports from the first ever Eurovision Song Contest Asia in Bangkok.
Ríf­lega 720 þúsund BMW-bifreiðar innkallaðar - Vísir
📅 14.11.2026 👁️ 4
Ríf­lega 720 þúsund BMW-bifreiðar innkallaðar - Vísir
Greint var frá því í gær, föstudaginn 13. nóvember, að fyrirtækið innkallaði 720.796 bifreiðar vegna hættu ​á að eldur kvikni á meðan bílarnir eru kyr...
Eurovision Asia: Philippines wins continent's first song contest
📅 14.11.2026 👁️ 4
Eurovision Asia: Philippines wins continent's first song contest
Front-runner Carmelle wins with 211 points for her women's empowerment anthem Sobra-Sobra.
„Leiðsögumaður“ reyndi að flýja lögreglu út um bakdyr veitingastaðar
📅 14.11.2026 👁️ 4
„Leiðsögumaður“ reyndi að flýja lögreglu út um bakdyr veitingastaðar
Lögregla handtók þrjá kínverska ríkisborgara á veitingastað sem býður upp á asíska matseld á Geirsgötu í Reykjavík á fimmtudaginn. Lögregla hefur til ...
Út­kall vegna elds í rusla­tunnu - Vísir
📅 14.11.2026 👁️ 4
Út­kall vegna elds í rusla­tunnu - Vísir
„Það kviknaði í ruslatunnu við Lágmúla 4 og það var einn dælubíll sendur,“ staðfesti Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðbor...
Kveiktu í húsi til að æfa sig
📅 14.11.2026 👁️ 4
Kveiktu í húsi til að æfa sig
Slökkviliðið í Borgarbyggð gerði sér lítið fyrir og kveikti í húsi í sveitarfélaginu í dag. Það var þó ekki í sama tilgangi og gengur og gerist hjá br...
Forsetar Bandaríkjanna, Kína og Rússlands ætla að hittast á fimmtudag
📅 14.11.2026 👁️ 4
Forsetar Bandaríkjanna, Kína og Rússlands ætla að hittast á fimmtudag
Donald Trump, Vladimír Pútín og Xi Jinping, forsetar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína, ætla að ræða saman 19. nóvember á ráðstefnu Efnahagssamvinnuráð...
Wales 35-28 New Zealand: Wales beat All Blacks for first time since 1953
📅 14.11.2026 👁️ 4
Wales 35-28 New Zealand: Wales beat All Blacks for first time since 1953
Wales celebrate a first victory against New Zealand since 1953 with a brilliant 35-28 win to spark astonishing scenes in Cardiff.
Filipps­eyjar unnu asíska Euro­vision - Vísir
📅 14.11.2026 👁️ 4
Filipps­eyjar unnu asíska Euro­vision - Vísir
Staðið hefur til að halda söngvakeppni milli asískra ríkja um árabil. Ástralir ætluðu upphaflega að halda utan um verkefnið og bjóða ríkjum Eyjaálfu a...