Kínverskur maður hefur verið handtekinn í Noregi grunaður um njósnir fyrir Kína. Maðurinn var handtekinn í Norðurlandi í Noregi á föstudag og var í morgun úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, þar af tvær vikur í einangrun, að því er norska ríkisútvarpið NRK greinir frá.
Lögmaður mannsins segir hann ekki hafa játað njósnir í yfirheyrslum lögreglu eða fyrir dómi.
Norski herinn hefur verið upplýstur um málið en vill ekki tjá sig frekar. Talsverð uppbygging hernaðarinnviða stendur yfir í Norðurlandi.