Íranar segjast reiðbúnir að svara efnahagsaðgerðum sem Bandaríkjamenn boðuðu í gær. Kínverjar segja viðskiptaþvinganir gegn ríkjum með tengsl við Íran ólöglegar og að þeir ætli að gera allt til að verja sína hagsmuni.
Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, boðaði umfangsmiklar efnahagsaðgerðir gegn Íran í gær og hótaði um leið refsiaðgerðum gegn fyrirtækjum og ríkjum með efnahagsleg tengsl við Íran. Þau fengju þó tækifæri til að slíta sambandinu áður en aðgerðirnar tækju gildi.
Íranar ætla að bregðast við
Íranar segjast reiðbúnir að bregðast við auknum efnahagsaðgerðum og viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna. Efnahagsráðherra Írans sagði að þær myndu aðeins leiða til enn eins ósigurs Bandaríkjanna.
Sérfræðingar hafa sett spurningamerki við aðgerðirnar og hvort þær geri sitt gagn, þar sem þær velti á viðbrögðum ríkja sem stunda viðskipti við Íran.
Kínverjar kaupa mest af íranskri olíu. Þeir hafa hunsað fyrri viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna og haldið áfram viðskiptum við Írana, þó að dregið hafi úr þeim eftir lokun Hormússunds í kjölfar stríðsins.
Ætla að vernda eigin hagsmuni
Lin Jian, talsmaður utanríkisráðuneytis Kína, segir samstarf þeirra og Írana alltaf hafa verið innan ramma alþjóðalaga og það ætti ekki að grafa undan því.
Það hafi margoft komið fram að Kína andmæli eindregið ólöglegum einhliða viðskiptaþvingunum sem skorti stoð í alþjóðalögum og hafi ekki verið heimilaðar af öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Jian segir stjórnvöld fylgjast náið með þróun mála og grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að vernda eigin réttindi og hagsmuni.
Xi forseti Kína fer til Bandaríkjanna í september og ætlar að ræða við Donald Trump Bandaríkjaforseta.