Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir það vonbrigði að aðkoma flokksins að sveitarstjórnum endurspegli ekki velgengni flokksins í nýafstöðnum kosningum.
„Já, þetta er svekkjandi og kemur á óvart því þetta var einstakt tækifæri sem fáir trúðu að gæti náðst fyrir kosningar,“ segir Sigmundur í samtali við mbl.is.
Þá segir Sigmundur ljóst að milli þeirra flokka sem nú myndi meirihluta í Reykjavík, sem hann kallar „kerfisflokka“, hafi ríkt þegjandi samkomulag um að útiloka Miðflokkinn, þar sem þeim stafi mikil ógn af tilveru hans.
Höfum séð þetta í mörgum Evrópulöndum
„Það er ljóst að þessir flokkar vilja sitja einir að kjötkötlunum. Þetta er ekkert nýtt þegar ný öfl í pólitík líkt og Miðflokkurinn sækja í sig veðrið og fara að storka lífsstíl kerfisflokka sem eru bara í ímyndarpólitík og segja ýmislegt fyrir kosningar án þess að hafa raunverulegan vilja til að breyta hlutum,“ segir Sigmundur.
„Þegar kemur einhver sem er svo alvara með þær breytingar sem hann boðar þá fara menn að útiloka þá flokka, en við höfum séð þetta í mörgum Evrópulöndum þar sem svona flokkar eru uppnefndir og útilokaðir, en hið merkilega er að þetta virkar aldrei og hefur í staðinn þveröfug áhrif,“ bætir hann við að lokum.