Fréttamiðillinn France 24 greinir frá því að Kavinsky, sem hét réttu nafni Vincent Belorgey, hafi fundist látinn á heimili sínu í París á þriðjudagskvöld.
Embætti saksóknara í Parísarborg segir að rannsókn sé hafin á dánarorsök og kringumstæðum andlátsins en ekkert bendi til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.
Langþekktastur fyrir „Nightcall“
Vincent Belorgey fæddist í París 31. júlí 1975 og var lykilpersóna í frönsku teknó- og hústónlistarsenunni ásamt þekktari nöfnum á borð við Daft Punk og Martin Solveig.
Kavinsky öðlaðist heimsfrægð með laginu „Nightcall“ þegar danski leikstjórinn Nicolas Winding Refn notaði það í opnunaratriði Hollywood-myndarinnar Drive (2011) með Ryan Gosling, Carey Mulligan og Ron Perlman í aðalhlutverkum. Lagið hafði komið út ári fyrr og var pródúserað af Kavinsky og Guy-Manuel de Homem-Chriso, annars helmings Daft Punk.
Kavinsky gaf út tvær breiðskífur á ferlinum, OutRun árið 2013 og Reborn árið 2022, og fjölda smáskífa. Hann var einnig viðriðinn franska kvikmyndagerð og lék meðal annars í myndunum Nonfilm (2001) og Steak (2007) eftir franska leikstjórann Quentin Dupieux.
Eftir útgáfu fyrri plötu sinnar tók Kavinsky sér sjö ára pásu frá tónlist en sneri aftur 2021 og á síðustu árum kom hann meðal annars fram á lokahátíð Ólympíuleikanna í París árið 2024.