BBC hefur sætt gagnrýni eftir viðtal við félagsfræðinginn Raewyn Connell þar sem rætt var um reynslu trans kvenna. Gagnrýnendur segja ríkisfjölmiðilinn ganga gegn nýlegum úrskurði hæstaréttar Bretlands um að lagaleg skilgreining kyns byggi á líffræðilegu kyni.
Connell, sem er 82 ára og fæddist karlkyns en gekkst undir kynleiðréttingu fyrir um tveimur áratugum, var spurð í viðtalinu hvort hún hefði sjálf upplifað kvenfyrirlitningu (e. misogyny).
Í kjölfarið bárust BBC fjölmargar kvartanir frá gagnrýnendum sem töldu hugtakið eingöngu eiga við um konur og því gæti líffræðilegur karl ekki orðið fyrir kvenfyrirlitningu. Breska blaðið The Telegraph greindi frá deilunni.
Gagnrýna stefnu BBC í kynjamálum
Sumir gagnrýnendur telja BBC hafa tekið upp hugmyndafræði þar sem kyn sé fyrst og fremst félagsleg eða huglæg sjálfsmynd fremur en líffræðileg staðreynd. Þeir hafa hvatt nýjan stjórnarformann BBC, Matt Brittin, til að endurskoða stefnu miðilsins í málaflokknum.
Deilan tengist meðal annars nýlegum dómi hæstaréttar Bretlands þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hugtökin „kona“ og „kyn“ í jafnréttislögum vísi til líffræðilegs kyns.
Tímamótadómur í Bretlandi
Kvenréttindasamtökin For Women Scotland stóðu að kærunni sem leiddi til dómsins. Samtökin hafa barist fyrir því að lagaleg vernd sem byggir á kyni taki aðeins til þeirra sem fæðast konur.
Dómurinn hefur verið túlkaður sem mikilvægt fordæmi í áframhaldandi deilu um réttindi trans einstaklinga annars vegar og réttindi kvenna á grundvelli líffræðilegs kyns hins vegar.