Karla Johnson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, er komin til Venesúela þar sem hún mun stýra verkefnum á sviði áætlanagerðar og vöktunar á aðgerðum Rauða kross-hreyfingarinnar á hamfarasvæðum jarðskjálftanna sem urðu að kvöldi 24. júní.
Skjálftarnir ollu víðtækum skemmdum og eyðileggingu í norðurhluta landsins. Staðfest dauðsföll skipta hundruðum og þúsundir hafa slasast. Fleiri þúsunda er enn saknað og hundruð fjölskylda hafa misst heimili sín og eru á vergangi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum.
Mjög erfiðar og flóknar aðstæður
Karla er menntuð í alþjóðasamskiptum og verkefnastjórnun og starfar nú á Evrópuskrifstofu Alþjóðasambands Rauða krossins í Búdapest. Áður starfaði hún hjá Rauða krossinum á Íslandi í verkefnum tengdum flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Karla hefur áður gegnt sendifulltrúastörfum fyrir Rauða krossinn.
Þá kemur fram að meðal helstu áskorana sem blasi við viðbragðsaðilum á vettvangi sé mikið og útbreitt tjón á innviðum, m.a. fjarskiptakerfum. Starf Körlu muni því einnig felast í því að bæta bæði öflun og flæði upplýsinga svo aðstoð megi byggja á þörfum hverju sinni. Þannig sé reynt að tryggja eftir fremsta megni, við mjög erfiðar og flóknar aðstæður, að bjargir berist þangað sem neyðin er mest og að fjármagn nýtist sem allra best.