Karen Ingólfs segist hafa beðið í nærri fimm ár eftir svörum vegna máls sonar síns, sem lést árið 2021 eftir að hafa veikst aðeins fjögurra daga gamall.
Karen greinir frá málinu í myndbandi sem hún birti á Facebook og segist hafa fengið nóg af því sem hún lýsir sem feluleik í kringum málið. Þar birtir hún líka hjartnæmt myndband af syni sínum sem nú er látinn.
„Bara ef ég fengi eitt augnablik, augnablik til að byggja upp smá sálarró. Ég mun berjast áfram sama hvað!!! Ég hef fengið nóg af þessum feluleik,“ skrifar Karen með myndbandinu.
Karen hefur áður sagt að hún vilji ekki að fjölmiðlar fjalli um mál sitt en hún hefur nú beðið Nútímann að koma sögu sinni á framfæri þar sem hún segist ekki eiga að þurfa að þegja yfir því hvernig farið hafi verið með son hennar og fjölskylduna í kjölfarið.
Veiktist fjögurra daga gamall
Í myndbandinu segir Karen að sonur hennar hafi fæðst árið 2021 og veikst af GBS streptókokkum þegar hann var aðeins fjögurra daga gamall.
„Hlaut varanlegan skaða eftir það,“ segir Karen.
Hún heldur því fram að ill meðferð af hálfu tveggja lækna hafi orðið til þess að sonur hennar lést í september 2023.
„Málið var tilkynnt til landlæknis 2021,“ segir hún.
Karen hefur áður lýst því opinberlega að hún telji alvarleg læknamistök hafa verið gerð við meðferð sonar hennar og að hún hafi árum saman barist fyrir því að þau verði rannsökuð.
„Ég sakna hans alla daga, sársaukinn í hjarta mínu óbærilegur,“ skrifaði hún í pistli um málið í júní.
Þar sagðist hún vera reið yfir því sem hún telur hafa gerst.
„Ég er REIÐ og alltaf að átta mig betur og betur hversu illa var farið með barnið mitt að hálfu tveggja lækna og eftir sitjum við með mölbrotin hjörtu því enginn vill viðurkenna læknamistökin.“
Segir málið liggja hjá saksóknara
Karen segir málið nú liggja á borði saksóknara en að rannsóknin hafi tafist vegna meintrar fölsunar á mæðraskýrslum.
„Málið liggur á borði saksóknara í dag. Neðst í bunkanum, vegna þess að við vorum kærð fyrir skjalafals. Áttum að hafa falsað mæðraskýrslur,“ segir Karen.
Hún hafnar því alfarið að hafa falsað gögn og segist ekki skilja hvernig hún ætti að hafa getað gert það.
Í fyrri pistli sínum sagði hún Landspítalann hafa sakað sig um að hafa falsað mæðraskýrslur.
„Ég er saklaus og búin að segja það allan tímann og skil ekki upp né niður. Ég hef leyft þeim að rannsaka allt hjá mér því ég hef ekkert að fela, ég hef ekkert gert af mér,“ skrifaði Karen.
Hún segist telja að kæran hafi orðið til þess að athyglin hafi beinst frá því sem hún sjálf vill fá rannsakað, það er meðferð sonar hennar.
„Hversu lengi á ég að bíða?“
Karen segist hafa sent saksóknara bréf og óskað eftir því að málið verði skoðað frá fleiri sjónarhornum.
„Ég er búin að fá staðfestingu á að saksóknari er búinn að móttaka bréfið, en ekki fengið nein svör. Hér bíð ég. Heilsan komin bara niður á botn.“
Hún segir biðina hafa tekið verulega á sig og spyr hversu lengi hún eigi að þurfa að bíða eftir niðurstöðu.
„Og hversu lengi á ég að bíða. Sonur minn er dáinn. Ég er búin að jarða barnið mitt. Ég er búin að bíða í nánast fimm ár.“
Karen segist þrátt fyrir allt ekki ætla að hætta baráttunni.
„Rétt skal vera rétt og ég held áfram að berjast þótt ég sé löngu komin á síðustu dropana og heilsa mín eftir því en ég stend staðföst á mínu og gef ekkert eftir,“ skrifaði hún.
„Þetta hefur kostað mig mikið en peningar skipta mig ekki máli heldur sannleikurinn.“