Kaffi með útsýni: Tveir gjörólíkir heimar blasa við ferðamönnum
Rétt við landamærin að Norður-Kóreu stendur Starbuck-kaffihús á hæð með útsýni. Ferðamenn flykkjast þangað til þess að forvitnast um þetta einangraða ríki, sem er að mestu lokað umheiminum.
Andstæðurnar gætu varla verið meiri. Ferðamenn taka sjálfur, sötra Starbucks-kaffi og horfa yfir til eins einangraðasta ríkis heims. Slík er upplifunin á Starbucks-kaffihúsi í suðurkóresku borginni Gimpo, skammt frá landamærum Norður-Kóreu, þar sem andstæður kapítalisma og kommúnisma blasa við gestum.
Kaffihúsið, sem opnaði í nóvember 2024, stendur á hæð við útsýnissvæði í Aegibong Peace Ecopark, innan við tveimur kílómetrum frá Norður-Kóreu hinum megin við Han-fljótið. Frá því að kaffihúsið tók til starfa hefur það laðað að sér tugþúsundir gesta bæði íbúa Suður-Kóreu og erlenda ferðamenn.
Ferðalagið hluti af upplifuninni
Gestir þurfa að bóka aðgang fyrirfram að svæðinu þar sem kaffihúsið stendur. Þaðan eru þeir fluttir með sérstökum skutlbílum og fara í gegnum hernaðareftirlitsstöð sem er vöktuð af vopnuðum landgönguliðum suðurkóreska hersins.
Síðasta spölinn ganga þeir að kaffihúsinu með útsýni yfir akra, fjöll og þorp í Norður-Kóreu, landi sem stjórnvöld undir stjórn Kim Jong Un hafa um árabil haldið lokuðu gagnvart …