Jörð nötrar nálægt Hellisheiðarvirkjun
Aðeins 2,5 kílómetrum frá þjóðvegi eitt stendur yfir skjálftahrina.
Jörð nötrar enn þar sem skjálfti að stærðinni 4,5 varð aðeins um 2,5 kílómetrum frá byggingum við Hellisheiðarvirkjun vestur af Henglinum klukkan 13.45 í dag.
Skjálftinn varð á 4,5 kílómetra dýpi. Aðeins 2,5 kílómetrar eru frá upptökum skjálftans að Hringveginum. Hann fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði.
Yfir 300 skjálftar hafa nú orðið á svæðinu síðan í gær. Tiltölulega algengt er að skjálftahrinur verði á svæðinu, en Veðurstofan mun fylgjast með.
Skjálftahrinan er nálægt svæði sem talið er í hættumati Veðurstofunnar vera líklegasta upptökusvæði eldgosa á Reykjanesskaga. Hún fellur hins vegar undir kerfi Brennisteinsfjalla, eins og það hefur verið skilgreint, en þau fjöll sem kerfið er kennt við liggja vestar og nær Kleifarvatni.
Búist er við því að stærstu mögulegu skjálftar á höfuðborgarsvæðinu verði í Brennisteinsfjöllum, eða allt að 6,4 að stærð. Síðast urðu svo stórir skjálftar þar árin 1929 og 1968. Voru áhrif skjálftanna jafnvel talin meiri en af stóra Suðurlandsskjálftanum 1896. Búist er við slíkum skjálftum á um 50 ára fresti að jafnaði í Brennisteinsfjöllum.
Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svatrsengi. Frá því að eldgosahrina hófst á Sundhnúkagígum norður af Grindavík hefur aldrei verið metið meira rúmmál kviku undir svæðinu. Síðasta gosi lauk þar 17. júlí í fyrra.
