Jarðskjálfti af stærðinni 3,1 varð á Reykjaneshrygg klukkan ellefu mínútur í tvö í nótt, 3,8 kílómetra suðvestur af Geirfugladrangi.
Skjálftar af þessari stærð eru mjög algengir þar stendur í athugasemd vakthafandi jarðvísindamanns á Veðurstofu Íslands. Síðast mældist skjálfti yfir þremur 2. júní.
Skjálfti varð einni á Reykjaneshrygg aðfaranótt laugardags. Sá var 2,9 og átti upptök sín 5,8 kílómetra norðnorðvestur af Geirfugladrangi.