Jarðskjálfti af stærðinni 3,3 varð rétt norðvestur af Þórisjökli laust eftir miðnætti. Nokkrir minni eftirskjálftar hafa mælst.
Jarþrúður Ósk Jóhannesdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir engin merki um gosóróa. Allt sé með kyrrum kjörum og ekkert bendi til þess að þarna fari að gjósa í bráð.
Hún segir skjálftann í takt við aukna virkni sem verið hefur á milli Þórisjökuls og Oks á síðustu vikum. Hún tók að aukast í byrjun maí. 3. júní síðiastliðinn urðu skjálftar af stærðinni 3,9 og 3,3 á þessu sama svæði.
Fréttin var uppfærð eftir að stærð skjálftans hafði verið yfirfarin.