Jarðskjálfti af stærðinni 3,3 mældist rétt norðvestur af Þórisjökli rétt eftir miðnætti í nótt. Engin merki eru um gosóróa að sögn náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands.
Jarþrúður Ósk Jóhannesdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í samtali við mbl.is að rúmlega 30 skjálftar hafi mælst í kjölfarið, fjórir þeirra rétt rúmlega tveir að stærð.
„Þetta er mjög svipað og það sem gerðist í byrjun mánaðarins en þá urðu tveir skjálftar 3,9 og 3,3 að stærð á þessu svæði. Þetta er að öllum líkindum vegna flekahreyfinga og það er enginn gosórói eða neitt slíkt,“ segir hún en skjálftavirkni tók að aukast á þessum slóðum í byrjun maí á þessu ári.