Áætlað er að það kosti um 2,2 milljarða króna að gera við verst förnu gangstéttir Reykjavíkur. Viðgerð í Langarima var flýtt eftir að kona slasaðist þar.
Reykjavíkurborg stendur frammi fyrir um 2,2 milljarða króna kostnaði vegna viðgerða á þeim gangstéttum sem verst eru farnar.
Vísir greindi fyrst frá málinu.
Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir að aðeins sé um að ræða brýnustu viðgerðirnar en ekki allan kostnað vegna gangstétta borgarinnar.
Ástand gangstéttanna hefur verið metið og flokkað eftir því hversu mikil þörf er á framkvæmdum. Borgaryfirvöld hyggjast forgangsraða verstu köflunum og leita leiða til að fjármagna viðgerðirnar.
Viðgerð flýtt eftir að kona slasaðist
Málið komst í sviðsljósið eftir að kona slasaðist á gangstétt í Langarima í Grafarvogi.
Viðgerðin hafði verið fyrirhuguð í ágúst en var flýtt í kjölfar slyssins. Viðvörunarmerkingar voru settar upp og framkvæmdir hófust.
„Þessi framkvæmd átti að fara fram í ágúst og við ýttum henni framar,“ sagði Guðný María.
Hún segir íbúa víða hafa kvartað undan slæmu ástandi gangstétta án þess að fá nægileg viðbrögð. Nú verði útbúinn sérstakur átakslisti yfir þau svæði þar sem þörfin er mest.
„Þetta eru stórar upphæðir og við þurfum strax í haust að skoða hvernig við getum forgangsraðað og fundið fjármuni,“ sagði hún.
Fjármagnið ræður ferðinni
Guðný María segir jafnframt verið að skoða hvernig bæta megi götuþrif í Reykjavík. Hún telur að meiri áhersla á þrif geti skilað betri árangri en rykbinding ein og sér.
Hún ræddi einnig breytingar á rekstri Strætó, en nýtt félag tekur við rekstrinum 1. júlí. Þar séu meðal annars tækifæri til að bæta upplýsingagjöf til farþega.
Hún segir þó ljóst að fjármagnið muni ráða því hversu hratt hægt verður að ráðast í verkefnin.