Samband íslenskra sveitarfélaga segir ríkið brjóta rúmlega ársgamalt samkomulag um sérhæfða þjónustu við börn með fjölþættan vanda með því að endurskilgreina hópinn sem fellur undir samkomulagið. Sambandið segir kostnað hafi verið meiri en ríkið hafi gert ráð fyrir.
Samkomulagið, sem gert var milli ríkis og sveitarfélaga í mars 2025, kveður á um að ríkið taki að sér framkvæmd og beri ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimilis.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hafa þessi börn verið um 35 að jafnaði, en að með nýrri reglugerð hafi ríkið einhliða endurskilgreint og þrengt hópinn sem fellur undir samkomulagið.
„Settar eru kerfislegar skorður sem útiloka börn frá aðgengi í viðeigandi úrræði þar sem ríkið stendur straum af kostnaði, þrátt fyrir mat sérfræðinga um þörf þeirra fyrir fjölþætta þjónustu,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá segir að engin fagleg rök séu fyrir því að ríkið ætti ekki að sinna þessum börnum, heldur einungis fjárhagsleg rök. Ríkið hafi greitt fyrir úrræði hópsins í fyrra á grundvelli samkomulagsins.
„Kostnaður vegna þjónustu við þessi börn er einfaldlega meiri en ríkið hafði gert ráð fyrir og því hefur ríkið ákveðið einhliða að endurskilgreina þessa hópa 15 mánuðum eftir að hafa undirritað samkomulag um ábyrgðaskiptingu við sveitarfélögin.“
Sambandið segir málið ekki aðeins snúast um einstaka reglugerð heldur líka um traust milli ríkis og sveitarfélaga.
„Sveitarfélögin undirrituðu samkomulagið 19. mars 2025 í góðri trú um að þar væri lagður sameiginlegur grunnur að betri þjónustu við börn með flóknar þarfir. Nú er ríkið að ganga á bak orða sinna. Það hlýtur að vekja upp alvarlegar spurningar hjá sveitarfélögum um traust og trúverðugleika ríkisins þegar kemur að því að standa við gerða samninga.“