Það vekur athygli að Heiðar Þór Guðnason, sérfræðingur í rannsóknum á tölvum og farsímum hjá Embætti héraðssaksóknara, virðist enn gegna lykilhlutverki innan embættisins þrátt fyrir að hafa fengið réttarstöðu sakbornings í lögreglurannsókn á síðasta ári.
Nútíminn greindi frá því í gær að Heiðar væri aðalviðmælandi í nýju kynningarmyndbandi ísraelska tæknifyrirtækisins Cellebrite, þar sem embætti héraðssaksóknara er sýnt sem dæmi um árangursríka notkun á tæknibúnaði fyrirtækisins við rannsókn sakamála. Í myndbandinu fer Heiðar ítarlega yfir hvernig embættið nýtir gögn úr farsímum og öðrum stafrænum miðlum við rannsóknir.
Fékk réttarstöðu sakbornings í fyrra
Í september á síðasta ári greindi RÚV frá því að Heiðar hefði fengið réttarstöðu sakbornings í lögreglumáli sem tengdist ummælum Jóns Óttars Ólafssonar við skýrslutöku.
Samkvæmt heimildum Nútímans liggur ekki fyrir að því máli hafi verið lokið.
Það þýðir að maður sem sjálfur er undir rannsókn lögreglu virðist á sama tíma gegna viðkvæmu hlutverki við stafrænar rannsóknir hjá embætti sem fer með rannsókn og ákæruvaldið í alvarlegum sakamálum.
Spurði embættið – engin svör
Nútíminn sendi í gær formlega fyrirspurn á embætti héraðssaksóknara þar sem spurt var meðal annars hvort Heiðar væri enn við störf, hvort staða hans sem sakbornings hefði áhrif á hæfi hans og hvort embættið teldi eðlilegt að hann kæmi fram opinberlega fyrir hönd þess í kynningarefni einkafyrirtækis.
Þegar þetta er skrifað hafa engin svör borist.
Málið vekur spurningar um gagnsæi, hæfi og trúverðugleika innan embættisins – sérstaklega í ljósi þess að Heiðar vinnur með einna viðkvæmustu persónugögn sem íslensk stjórnvöld hafa aðgang að við rannsókn sakamála.
Ef svör berast frá embætti héraðssaksóknara verður þessi frétt uppfærð.