Umhverfisráðherra segir utanvegaakstur á hálendinu ólíðandi. Vinna sé hafin í ráðuneytinu í samráði við Náttúruverndarstofnun sem miðar að því að herða viðurlög við brotum af þessu tagi.
Lögreglan á Suðurlandi hefur sektað ferðamenn sem staðnir voru að stórfelldum utanvegaakstri um helgina. Ferðamennirnir óku á tveimur Land Rover-jeppum og eru sagðir hafa spænt upp landslag á lokuðu svæði við Kötlujökul, Einhyrning og í Hvanngili.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, segir brýnt að taka fastar á brotum sem þessum.
„Það er auðvitað algjörlega óþolandi og óverjandi að gengið sé svona um landið okkar. Mér finnst það augljóst að fjárhæðirnar endurspegli engan veginn þann skaða og alvarleika þessara brota og kostnaðinn sem hlýst af því að koma landslaginu aftur í fyrra horf,“ segir Jóhann Páll.
„Þannig að við þurfum bara að taka miklu fastar á svona brotum, taka fastar á skussunum og tryggja að sektirnar bíti og hafi raunveruleg varnaðaráhrif.“
Vinna að því að herða viðurlög
Jóhann Páll segir að vinna sé hafin er hafin í ráðuneytinu, í samráði við Náttúruverndarstofnun, sem miðar að því að herða viðurlög við utanvegaakstri. Til greina kemur að gera breytingar á náttúruverndarlögum.
„Þetta eru tvö skref. Annars vegar það sem við getum gert núna á meðan þing er ekki í gangi sem er að eiga formlegt samtal við lögregluyfirvöld og eftir atvikum ríkissaksóknara með Náttúruverndarstofnun um hvernig ákvæðunum er beitt í dag og hvernig við getum teygt okkur innan ramma núgildandi laga. Næsta skref væri að skoða breytingar á ákvæði náttúruverndarlaga um viðurlög við utanvegaakstri og það yrði þá eitthvað sem yrði horft til í haust samhliða öðrum breytingum á náttúruverndarlögum sem við erum með í undirbúningi.“
Utanvegaakstur helgarinnar er áminning um mikilvægi landvörslu og hálendiseftirlits, segir Jóhann Páll. Beita þurfi heimildum laganna með frekari þunga og full ástæða sé til að herða viðurlög.
„Þetta eru svo mikil verðmæti sem við eigum hérna saman og þurfum að vernda. Og utanvegaakstur er bara stórkostleg ógn við þessi verðmæti og ósnortna náttúru og landslag. Og við getum ekki leyft þessu að gerast bara ár eftir ár, að gengið sé svona fram.“