Hæstiréttur Íslands hefur staðfest sýknu íslenska ríkisins í máli Vélfags gegn ríkinu og þar með hafnað kröfum fyrirtækisins um aðgerðir stjórnvalda og Arion banka vegna frystingar fjármuna félagsins. Málið hefur vakið mikla athygli undanfarna mánuði enda hefur Vélfag haldið því fram að stjórnvöld hafi með ólögmætum hætti lamað rekstur fyrirtækisins og komið í veg fyrir að það gæti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart starfsfólki og viðskiptavinum.
Málið á rætur sínar að rekja til þess þegar Arion banki frysti reikninga félagsins í kjölfar þvingunaraðgerða sem tengdust meintum tengslum við rússneska hagsmuni. Vélfag hélt því fram að framkvæmd þessara aðgerða hefði í raun verið framseld til einkabanka, án þess að fyrirtækið nyti eðlilegrar stjórnsýslumeðferðar.
Kaufmann: Þorgerður Katrín lét þau skilaboð berast að ég ætti að selja Vélfag Íslendingi
Kaufmann segir dóminn áfall fyrir réttarríkið
Í harðorðri yfirlýsingu sem Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, sendi frá sér í dag eftir dóminn segir hann niðurstöðuna „annan slæman dag fyrir Ísland“.
Kaufmann segir að með dóminum sýni Ísland að það hafi ekkert lært af bankahruninu árið 2008 og að landið sé enn undir áhrifum „banka og miskunnarlausra stjórnmálamanna“ sem setji eigin frama ofar framtíð þjóðarinnar. Hann gagnrýnir sérstaklega að íslenskir dómstólar hafi að hans mati aldrei krafist haldbærra gagna til að réttlæta aðgerðirnar gegn fyrirtækinu.
„Það er sláandi að enginn dómstóll á Íslandi hafi nokkru sinni kallað eftir sönnunargögnum,“ segir Kaufmann í yfirlýsingunni.
Segir málið fara fyrir evrópska dómstóla
Kaufmann segir jafnframt að málinu sé hvergi nærri lokið og að næsta skref verði að leita réttar síns fyrir evrópskum dómstólum.
Hann heldur því fram að um hafi verið að ræða pólitíska valdbeitingu sem hafi leitt til þess að tugir fjölskyldna misstu lífsviðurværi sitt og að 30 ára gamalt fyrirtæki hafi verið lagt í rúst.
Í lok yfirlýsingarinnar tengir Kaufmann málið við komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandsaðild og hvetur Íslendinga til að hafa dóminn í huga þegar þeir kjósa í ágúst.
Málið er því langt frá því að vera úr sögunni – þrátt fyrir að Hæstiréttur hafi nú tekið af skarið hér heima.
Hér fyrir neðan má sjá nýlegt viðtal sem tekið var við meirihlutaeiganda Vélfags, Ivan Kaufmann á efnisveitunni Brotkast.is