Það er sannkölluð blúsveisla framundan í brugghúsinu Ægi 220 í Hafnarfirði,laugardaginn 27. júní til styrktar Píeta samtökunum. Margir af fremstu blúsurum landsins stíga á svið og leggja málefninu lið á stórtónleikum sem hefjast kl. 15 og standa til miðnættis.Á dagskrá verða 13 hljómsveitir, glæsileg bílasýning frá Krúser og dýrindis matvagnar verða á svæðinu.
Blúsveisla í Hafnarfirði til styrktar Píeta samtökunum