Erica Mancel, systir Emeric Marcel, mannsins sem fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hóteli í fyrra, segir bróður sinn hafa verið mjög stjórnsaman. Hún segir dóttur hans, Catherine , sem fannst líka látin, hafa verið greindarskerta.
Aðalmeðferð í svokölluðu Edition-máli hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ming Ting Mancel er ákærð fyrir að hafa orðið þrítugri dóttur sinni að bana í samverknaði við eiginmann sinn.
Faðirinn ákvað allt
Systir fjölskylduföðurins gaf skýrslu fyrir dómi í morgun. Hún sagði fjölskylduna ekki hafa lifað venjulegu fjölskyldulífi, þvert á móti hafi það minnt hana á sjöunda áratuginn. Hún segir Ming Ting Mancel og Catherine Mancel, dóttur þeirra, hafa verið undirgefnar bróður hennar og í raun háðar honum.
Emeric ákvað allt, segir Erica Mancel, hann hafi sagt henni það sjálfur. Hann sagði að konan hans, Ming, tæki engar ákvarðanir.
Hún sagði Ming aldrei hafa tekið þátt í fjármálum, eiginmaður hennar hefði meira að segja alltaf komið með henni að versla inn fyrir heimilið. Hann borgaði alltaf, hún hefði aldrei verið með kreditkort með sér.
Catherine fæddist með heila sem var skroppinn saman
„Catherine var lítillega greindarskert sem stafaði af vansköpun á heila,“ sagði Erica. Hún segist vera læknir og hafa verið starfandi á barnadeild sjúkrahússins sem Catherine fæddist á þegar hún fæddist.
Hún segist hafa setið fund á sjúkrahúsinu þar sem mál Catherine hafi verið tekið fyrir í kjölfar fæðingar hennar. Með heilaskanna hafi verið ljóst að hún hafi fæðst með heila sem var skroppinn saman að hluta.
Þegar Catherine hafi oxið úr grasi hafi ekki farið á milli mála að þroski hennar hafi verið hægur. Hún sagði að Catherine hefði ekki getað búið ein án foreldra sinna, en hún bjó hjá þeim alla tíð.
Systir Ericu og Emerics sagðist í skýrslutöku hafa komið heim til fjölskyldunnar og séð að Catherine svæfi í barnarúmi 22 ára gömul. Erica gat ekki staðfest þetta, hún hafi ekki komið heim til bróður síns á þessum tíma.
Vildi ekki skilja eiginkonu og dóttur eftir
Erica segir bróður sinn hafa viljað deyja bæði sökum nýrnasjúkdóms sem hann var með en líka vegna þess að hann hrjáðist af þunglyndi, aðallega vegna erfðadeilna við systur þeirra.
Hún segir að hann hafi ekki viljað skilja dóttur sína og eiginkonu eftir einar í erfðadeilunni. Erica telur bróður sinn hafa skipulagt Íslandsferðina þar sem hann var vanur að ákveða allt fyrir fjölskylduna.
Systir Emeric og Ericu hefur sakað Emeric um að stela arfi af systkinum sínum.
Erica segist hafa fengið tölvupóst frá bróður sínum áður en fjölskyldan fór til Íslands þar sem hann skrifaði „við ætlum að hverfa“. Síðustu orðin í tölvupóstinum hafi verið „vertu sæl.“ Þá hafi hún vitað að þau ætluðu að svipta sig lífi, öll þrjú.
Aðalmeðferð málsins heldur áfram á mánudag.