„Elsku þjóð, hvar á Kaffistofa Samhjálpar að vera? Hvar á skjólshús að vera? Hvað með Konukot? Alltaf rís upp fólk sem telur að vissulega eigi starfsemin rétt á sér en það sé algjört glapræði að koma henni fyrir þar sem fyrirhugað er að koma henni fyrir. Gott úrræði en alls ekki hér.“ Svona hefst ákall Gríms Atlasonar, framkvæmdastjóra Geðhjálpar, eftir að byggingarleyfi kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi var afturkallað.
Regína: „Það er því miður ekki neinn „annar staður“ sem hentar“