Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum fyrirtækisins Vélfags í Hæstarétti.
Máli Ivan Nicolai Kaufmann, meirihlutaeiganda fyrirtækisins, var vísað frá.
Vélfag krafðist þess að íslenska ríkið myndi snúa við ákvörðun Arion banka að frysta fjármuni félagsins. Fyrirtækið varð á síðasta ári fyrsta fyrirtækið til að vera beitt efnahagsþvingunum vegna meintra tengsla við rússneska skuggaflotann. Vélfag hefur viljað meina að ákvörðunarvald um það liggi hjá ríkinu en ekki bankanum.
Dómurinn hefur ekki enn verið birtur og því liggur rökstuðningur hans ekki fyrir.
Málin eru tvö og var dómur kveðinn upp í þeim á sama tíma. Hið seinna sneri að kröfu Kaufmann um að honum yrði veitt leyfi til þess að setjast í stjórn Vélfags. Honum var meinað um stjórnarsetu af utanríkisráðuneytinu þar sem hann var ekki talinn raunverulegur eigandi heldur Nikita Orlov, sonur rússneska útgerðarmannsins Vitaly Orlov.
Vélfag mátti sæta umræddum viðskiptaþvingunum vegna tengsla sinna við Norebo, félag sem er í eigu Vitaly Orlov. Hann er einn stærsti útgerðarmaður Rússlands og er talinn hafa tengsl við rússneska skuggaflotann.
Ivan Nicolai Kaufmann sagði eftir aðalmeðferðina í Hæstarétti að ef niðurstaða málsins væri honum ekki að skapi myndi hann leita til evrópskra dómstóla.