Rauð hitaviðvörun sem gefin hefur verið út fyrir stóran hluta Mið- og Suður-Englands og Wales í dag er aðeins önnur slík viðvörunin sem bresk yfirvöld hafa nokkru sinni gefið út. Sú fyrsta var í júlí 2022 þegar hiti fór yfir fjörutíu gráður.
Breska veðurstofan spáir allt að 38 stiga hita á sunnanverðu Englandi. Skólum hefur sums staðar verið lokað vegna þess að lestarferðum hefur verið aflýst til þess að draga úr óþarfa ferðalögum á meðan viðvörunin er í gildi, að sögn AP-fréttastofunnar.
Þá hefur Network Rail, fyrirtækið sem rekur breska lestarkerfið, varað við töfum í dag. Hraði lesta er takmarkaður vegna hitans sem getur meðal annars sveigt teina og haft áhrif á rafmagnsvíra.
Dagshitamet var slegið í Frakklandi í gær þegar meðalhiti á þrjátíu veðurathuganastöðvum víðsvegar um landið náði 29,8 gráðum. Opnunartími Eiffel-turnsins og Louvre-safnsins í París var skertur vegna hitans.
Áfram er spáð miklum hita í Frakklandi í dag. Tugir milljóna manna búa við rauðar hitaviðvaranir í Frakklandi, á Spáni og á Ítalíu í dag.
Á Ítalíu hafa rauðar viðvaranir verið gefnar út í sextán borgum, þar á meðal í Róm, Mílanó, Flórens og Tórínó. Hitinn er talinn geta náð allt að 41 gráðu í Flórens og 38 gráðum í Mílanó.