Séra Hjálmar Jónsson, fv. dómkirkjuprestur og fv. alþingismaður, hefur átt meira láni að fagna á golfvellinum en gengur og gerist. Undanfarinn áratug eða svo hefur hann fjórum sinnum farið holu í höggi.
„Annar hver maður segir að ég fái hjálp að ofan. En þegar mér mistekst, og ég týni boltanum í karga, þá er reyndar aldrei minnst á það,“ segir Hjálmar sposkur þegar hann er spurður hvort eitthvað geti skýrt þessa miklu velgengni á par 3-holunum.
Hjálmar fór holu í höggi í vikunni á 8. brautinni á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi þar sem hann er meðlimur. Er það í þriðja skiptið sem hann fer holu í höggi á þeirri braut, sem er með nokkrum ólíkindum. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er horft niður á flötina af teignum og viðstaddir geta því séð glögglega þegar boltinn fer í holuna. „Að sjá hann rúlla að og beint ofan í; það er óskaplega gaman, ég viðurkenni það,“ segir Hjálmar. Á það hefur verið bent af meðlimum í Oddi að Hjálmar þurfi að ná þessu einu sinni til viðbótar og þá verði 8. brautin sú braut á íslenskum völlum þar sem kylfingar hafa oftast slegið draumahöggið.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.