Raunveruleikastjarnan Brandi Glanville, sem sló í gegn í þáttunum The Real Housewives of Beverly Hills, lýsti því í samtali við TMZ í febrúar að hún hefði orðið afskræmd í andliti vegna sýkingar sem átti rætur að rekja til sprunginna brjóstapúða. Raunum raunveruleikastjörnunnar er þó ekki lokið en hún hefur nú greinst með góðkynja æxli í andlitinu.
Raunum raunveruleikastjörnunnar ekki lokið - Er aftur að verða afskræmd í framan