Frá og með haustinu verða innheimtar 450 krónur á klukkutímann þegar lagt er lengur við fjóra klukkutíma við verslunarmiðstöðina Smáralind. Áfram verður frítt að leggja í fjóra tíma og sagði Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, í kvöldfréttum Sýnar í gær að þeir sem koma á bíl í Smáralind og eru skemur en fjóra tíma muni ekki finna fyrir neinu.
„Það er samt ekkert verið að þrengja að fjölskyldubílnum í Kópavogi“