Tuttugu og fjórir sóttu um embætti bæjarstjóra Suðurnesjabæjar. Á lista yfir umsækjendur eru margir reynsluboltar úr sveitarstjórastólum, fyrrverandi alþingismenn og körfuboltadómari, svo nokkrir séu nefndir.
Víkurfréttir birtu lista yfir umsækjendur. Á listanum eru meðal annars Pétur G. Markan, fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis, Einar Kristján Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri Húnavatnshrepps og Skaftárhrepps, Alexandra Jóhannesdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri Skagastrandar, og Ólafur Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóri Reykhólahrepps.
Meðal umsækjenda eru einnig Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður, Gísli Rafn Ólafsson, fyrrverandi alþingismaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Rauða krossins, og Kristinn Óskarsson, körfuboltadómari og fyrrverandi mannauðsstjóri Reykjanesbæjar.
Hér er listi yfir umsækjendur í heild:
- Agnar Júlíusson – Forstöðumaður
- Alexandra Jóhannesdóttir – Fv. sveitar- og hafnarstjóri
- Arna Hrönn Aradóttir – Verkefnastjóri og ráðgjafi
- Aron Heiðar Steinsson – Deildarstjóri
- Ásgeir Sveinsson – Verkefnastjóri
- Ásmundur Friðriksson – Fv. alþingismaður
- Birgir Albertsson Sanders – Blikksmiður
- Einar Kristján Jónsson – Fv. sveitarstjóri
- Gauti Magnússon – Viðskiptastjóri
- Gísli Kr. Björnsson – Lögmaður
- Gísli Rafn Ólafsson – Fv. framkvæmdastjóri
- Hannes Lúðvíksson – Ritari
- Hilmar Vilberg Gylfason – Lögfræðingur
- Jóhann Friðrik Friðriksson – Ráðgjafi
- Jón Ingi Hákonarson – Ráðgjafi
- Kristinn Óskarsson – Stjórnendaþjálfari og ráðgjafi
- Maríanna Hugrún Helgadóttir – Fv. framkvæmdastjóri
- Ólafur Þór Ólafsson – Fv. sveitarstjóri
- Pétur G. Markan – Fv. bæjarstjóri
- Sigurður Jóhannesson – Sérfræðingur
- Snorri Leo Gabríelsson – Þjónn
- Súsanna Björg Fróðadóttir – Lögmaður
- Syed Anisuddin – Öryggisvörður
- Þorsteinn Þorsteinsson – Ritstjóri