Landspítalinn braut ekki gegn jafnréttislögum með því að greiða forstöðulæknum hærri laun en forstöðuhjúkrunarfræðingum. Þetta var niðurstaða kærunefndar jafnréttismála í úrskurði sem féll þann 19. maí sl. sem var birtur á vefnum í gær.Fyrst var greint frá málinu í október árið 2024 þegar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafði sent kæru til kærunefndar jafnréttismála vegna þess að forstöðuhjúkrunarfræðingar á Landspítalanum fengu ríflega 150 þúsund krónum lægri laun en forstöðulæknar á sömu sviðum. Taldi félagið að um ólögmætan kynbundinn launamun væri að ræða.
Ekki brot gegn jafnréttislögum að greiða forstöðulæknum hærri laun en forstöðuhjúkrunarfræðingum