5000 manns frá 26 löndum komu saman á dönsku eyjunni Fanø um helgina til að fljúga flugdrekum. 25 þúsund flugdrekar í öllum regnboganslitum og stærðum tóku á loft. Aðstæður á eyjunni, stöðugir strandvindar og víðáttumiklar, opnar strandir, eru fullkomnar fyrir flugdrekana.
Hátíðin var fyrst haldin 1985 af Þjóðverja sem fór til Fanø með nokkrum vinum til að fljúga flugdrekum. Þeim fannst svo skemmtilegt að þeir ákváðu að koma árlega með fleiri vinum. Síðan þá hefur hátíðin stækkað og stækkað.
Þátttakendur settu alls kyns flugdreka á loft, allt frá ævintýralegum furðuverum til risastórra sjávardýra. Sumir flugdrekarnir eru á stærð við hús og oft þarf fjölda fólks til að koma þeim á loft. Tuttugu manns þurfti til að koma níu risastórum kolkrabbaflugdrekum á loft.