Þjóðaröryggisráðherra Ísraels, Itamar Ben Gvir, birti myndskeið á samfélagsmiðlinum X í gær sem sýndi tugi aðgerðasinna beitta harðræði. Fólkið var neytt til liggja á hnjánum með hendur bundnar og höfuð niður í gólfi. Myndskeiðið var birt með textanum „Velkomin til Ísraels“ og á einum stað heyrðist þjóðsöngur Ísraels í bakgrunni.
Myndskeiðið vakti hörð viðbrögð víða um heim og fjölmargir þjóðarleiðtogar fordæmdu meðferðina á aðgerðasinnunum. Þá gagnrýndi forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, þjóðaröryggisráðherrann og sagði að meðferðin á aðgerðarsinnum væri ekki í takt við gildi og hefðir Ísraels og stjórnvöld myndu sleppa þeim eins fljótt og auðið væri.
Frönsk og belgísk stjórnvöld hafa kallað ísraelska sendiherra til fundar vegna málsins. Mark Carney forsætisráðherra Kanada sagði meðferðina á aðgerðasinnunum viðurstyggilega og utanríkisráðherra Írlands Helen McEntee sagði að myndskeiðið sýndi að brotið væri gegn virðingu og reisn þeirra og hún krefst tafarlausrar lausnar. Breski utanríkisráðherrann Yvetta Cooper sagði að breska ríkisstjórnin hefði krafist skýringa frá ísraelskum stjórnvöldum.
Þá hafa stjórnvöld í Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Spáni, Póllandi og Tyrklandi einnig fordæmt atvikið og myndskeiðið sem Itamar Ben Gvir birti.
Ísraelar hafa áður stöðvað sams konar neyðaraðstoð, síðast í apríl.