Stjórnvöld í Ísrael og Líbanon hafa samþykkt að koma á vopnahléi milli ríkjanna. Samkomulagið er háð því að Hezbollah-samtökin hætti öllum árásum á Ísrael. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu en fulltrúar ríkjanna hittust í Washington í dag til að ræða um leiðir að friði. Frekari viðræðum verður framhaldið 22. júní.
Í yfirlýsingunni segir að ríkin séu sammála um að framtíð sambands Ísraels og Líbanons eigi að vera ákveðin af stjórnvöldum þessara ríkja. Önnur ríki eða hópar eigi ekki að halda framtíð Líbanons í gíslingu, eins og það er orðað.
Samkomulagið felur einnig í sér að allir liðsmenn Hezbollah verði fjarlægðir úr suðurhluta Líbanons, á landsvæði sem nú lýtur stjórn Ísraelshers. Það nær frá landamærum ríkjanna að ánni Litani.
Staðbundið vopnahlé samþykkt fyrr í vikunni
Í dag voru í það minnsta níu drepnir í árásum Ísraelshers í suðurhluta Líbanons og Hezbollah-samtökin skutu flugskeytum inn í norðurhluta Ísraels.
Á mánudag var samkomulag um staðbundið vopnahlé samþykkt. Með því skuldbatt Ísrael sig til að gera ekki árásir á líbönsku höfuðborgina Beirút í skiptum fyrir að Hezbollah réðust ekki á Ísrael.
Yfir milljón flúið heimili sín
Í mars sagði Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, að ísraelski herinn ætlaði að koma upp öryggissvæði í suðurhluta Líbanons. Íbúum í þeim hluta landsins sem lögðu á flótta verður ekki leyft að snúa aftur til síns heima fyrr en Ísraelar telja land sitt öruggt gagnvart árásum, að því er segir í frétt BBC.
Ísraelar hafa skipað íbúum sem búa á einum áttunda af öllu landsvæði Líbanons að fara annað. Sameinuðu þjóðirnar segja meira en milljón hafa flúið heimili sín í landinu frá því að stríðið braust út.