24 ára íslenskur karlmaður lést eftir óhapp við fallhlífarstökk í Óðinsvéum rétt fyrir hádegi í dag.
Danska lögreglan í Fjóni staðfesti þetta við danska miðilinn Extra Bladet.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá lögreglunni var ekki hægt að bjarga lífi mannsins og atvikið er rannsakað sem slys. Vísir greindi fyrst frá.
Tilkynningin um slysið barst klukkan 11:30 að dönskum staðartíma. Samkvæmt lögreglunni á Fjóni voru lögregla og sjúkrabíll send á staðinn, í grennd við Beldringe flugvöllinn í Óðinsvéum. Endurlífgun var beitt í hálftíma án árangurs. Maðurinn var ekki búsettur í Danmörku. Aðstandendur hafa verið látnir vita.
René Steen Hansen, formaður félags danskra fallhlífastökkvara, segir í samtali við fréttastofu að maðurinn hafi verið á námskeiði hjá fallhlífamiðstöðinni Odense Faldskærmscenter. Hann var í fyrsta skipti að stökkva einn þegar slysið varð.
Nikolaj Nedovic Larsen, framkvæmdastjóri í fallhlífamiðstöðinni, segir að margir hafi orðið vitni að slysinu. Fólkinu var veitt áfallahjálp. Fallhlífarstökkssamfélagið sé lítið og þétt og allir séu í áfalli.
Málið er á borði borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins sem veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.
Fréttin verður uppfærð.