Myndband af erlendum ferðamanni sem fór út fyrir merkta gönguleið í Fjaðrárgljúfri hefur vakið töluverð viðbrögð á Reddit-síðunni VisitingIceland.Sá sem birti myndbandið segist hafa reynt að ná athygli ferðamannsins og benda honum á að svæðið væri lokað til að vernda gróðurinn, en án árangurs. Ferðamaðurinn hafi einfaldlega hunsað ábendingarnar.„Skiltin og girðingarnar eru þarna af ástæðu. Við sem gestir þurfum öll að virða reglurnar,“ skrifaði viðkomandi og benti á að slík hegðun gæti á endanum orðið til þess að viðkvæmum náttúrusvæðum yrði lokað fyrir ferðamönnum.
Íslendingur segir þetta virka á óhlýðna ferðamenn - „Þá koma þeir til baka í hvert einasta skipti“