„Við enduðum í 7. sæti. Norðmenn unnu EM í Ríga sem var að klárast. Árangurinn er glæsilegur og þýðir að við erum á ný komin í hóp bestu briddsþjóða heims og munum keppa um Bermudaskálina næsta ár í fyrsta skipti um langt skeið,“ segir Matthías Imsland, leiðangursstjóri íslenska hópsins og framkvæmdastjóri Bridge-sambandsins.
Matthías leyfði sér að vera gríðarlega bjartsýnn fyrir mótið og nú er komið á daginn að hann hefur staðið við stóru orðin:
„Ég er gríðarlega stoltur af landsliðsmönnunum okkar og Jón Hersir Elíasson, læknir og landsliðsfyrirliði, hefur einnig staðið sig frábærlega hér úti í Ríga,“ segir Matthías, harla ánægður með árangurinn.
Matthías segir að stórsigur gegn Belgum í lokaumferð hafi tryggt sætið og gaman sé að Ísland sé nú aftur komið í fremstu röð í bridds.