Ís­landi lýst sem „nú­tíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu - Vísir

Ís­landi lýst sem „nú­tíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu - Vísir

Nafngreindir og ónafngreindir viðmælendur miðilsins lýsa „fámennisveldi“ þar sem fámennur hópur hefur óhóflega mikil áhrif á pólitískar ákvarðanir og iðnaði sem byggi á „ótta, stjórnun, græðgi og pólitískum áhrifum.“

„Út á við er Ísland þekkt sem friðsælt lýðræðisríki sem græðir mikið á nýveiddum fiski úr nærliggjandi hafsvæðum. En á Íslandi kraumar önnur frásögn um valdatengsl í landinu,“ segir í inngangi greinarinnar. Heimildarmenn blaðsins eru sagðir telja núverandi og fyrrverandi stjórnmálamenn, embættismenn, hagfræðinga og starfsmenn útgerðarfyrirtækja.

Berlingske hefur eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, að hann hafi reynt að „laga“ vandamálið en sterkur þrýstihópur standi í vegi þess. Þá lýsi hann samfélagi sem einkennist af eiginhagsmunum og frændhygli.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.Vísir/Sigurjón

„Það er vandamál á Íslandi að stjórnmálamenn taka sérhagsmuni að miklu leyti til greina,“ segir fjármála- og efnahagsráðherra. Hann vill þó ekki ganga svo langt að tala um fámennisveldi.

Berlingske segir að aðrir fyrrverandi og núverandi stjórnmálamenn fullyrði að þeir hafi upplifað „þrýsting“ og „óbeinar ógnir“ frá sjávarútveginum. Daði Már leggur fyrst og fremst áherslu á tengslin milli Sjálfstæðisflokksins og sjávarútvegsins. Fullyrða hann og fleiri heimildarmenn danska miðilsins að það sé í raun „bein lína“ frá Sjálfstæðisflokknum til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS).

Elíta með völdin

Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, er afdráttarlaus.

„Það er ákveðin elíta sem hefur völdin á Íslandi – það er nánast ekkert eftir fyrir alla aðra,“ segir hann og heldur áfram: „Ólíkarkar eru líklega besta orðið til að lýsa þeim.“

Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi formaður atvinnuveganefndar.Vísir/Anton Brink

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, tekur undir í samtali við Berlingske. „Við erum orðin fámennisveldi (d. oligarki). Það er raunveruleikinn.“

Gylfi Magnússon, hagfræðingur og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að „fámennisveldi [sé] gagnlegt hugtak.“ Þorvaldur Gylfason, prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands, gengur enn lengra.

Þorvaldur Gylfason prófessor emeritus í hagfræði.Vísir/Vilhelm

„Ísland er orðið nútíma fáveldisríki og ólígarkarnir eru útgerðarmennirnir sem eru í grundvallaratriðum nýrík og þröng stétt valdamikils fólks,“ segir Þorvaldur.

Stór hluti upplifði spillingu

Danski miðillinn segist hafa óskað eftir svörum frá hópi fólks með faglega reynslu eða beina þekkingu á íslenskum sjávarútvegi og flestir þeirra hafi svarað því að „spilling [væri] alvarlegt vandamál á Íslandi sem þyrfti að lagfæra strax.“

Þá vísar Berlingske í könnun Maskínu frá árinu 2019 þar sem 72,6% svarenda sögðu mikla spillingu vera í íslensku viðskiptalífi og 71,9% sögðu það sama eiga við um stjórnmálin.

Berlingske fjallar einnig um starfsemi Samherjasamstæðunnar í Namibíu og meint mútubrot, peningaþvætti og auðgunarbrot þar í landi. Greint var frá því síðasta sumar að rannsókn embættis héraðssaksóknara á málinu væri lokið og gögnum hefði verið komið til saksóknara embættisins. Níu manns, bæði fyrrverandi og núverandi starfsmenn Samherja, eru með réttarstöðu sakbornings í málinu.

Þá er rætt við Jóhannes Stefánsson, uppljóstrara og fyrrverandi stjórnanda hjá Samherja í Namibíu, sem grunar að eitrað hafi verið fyrir sér eftir að hann hætti störfum hjá fyrirtækinu í desember árið 2016. 

Einnig fjallar danski miðillinn um umfjöllun Heimildarinnar og Kjarnans þar sem greint var frá því að starfsmaður Samherja hafi áreitt Helga Seljan blaðamann, aðgerðir svokallaðrar „Skæruliðadeildar“ fyrirtækisins og fjölmiðlaumhverfið á Íslandi. Sömuleiðis er úthlutun kvóta í árdaga fiskveiðistjórnunarkerfisins og þróun þess gerð að umtalsefni.

Daði Már fjármálaráðherra segist í samtali við Berlingske hafa reynt að breyta kerfinu og kallað eftir því að hluti af kvótanum verði settur til hliðar og seldur á útboði á hverju ári. 

Aðspurður hvers vegna það hafi ekki orðið að veruleika svarar Daði: „Leyfið mér að orða það svona: Það er mjög öflugur pólitískur þrýstihópur.“

#fámennisveldi #spillingu #uppfullu #íslandi #nútíma


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262871031d/islandi-lyst-sem-nutima-famennisveldi-uppfullu-af-spillingu

📰 Aðrar fréttir

Breivik sækir um reynslulausn eitt skiptið enn
📅 24.04.2026 22:35:28 👁️ 0

Breivik sækir um reynslulausn eitt skiptið enn

#reynslulausn#breivik#skiptið#sækir#eitt
Trump's envoys Witkoff and Kushner to fly to Pakistan for Iran talks
📅 24.04.2026 22:02:50 👁️ 0

Trump's envoys Witkoff and Kushner to fly to Pakistan for Iran talks

#pakistan#witkoff#kushner#envoys#trump
I'm A Celebrity crowns 'jungle legend' after eventful all-star series
📅 24.04.2026 21:36:57 👁️ 0

I'm A Celebrity crowns 'jungle legend' after eventful all-star series

#celebrity#eventful#crowns#jungle#legend
Netanjahú greindist með krabba­mein - Vísir
📅 24.04.2026 21:32:07 👁️ 0

Netanjahú greindist með krabba­mein - Vísir

#krabbamein#netanjahú#greindist#vísir
„Þetta er svona íslensk aðferð, framkvæma fyrst og spyrja svo“
📅 24.04.2026 21:20:44 👁️ 0

„Þetta er svona íslensk aðferð, framkvæma fyrst og spyrja svo“

#framkvæma#íslensk#aðferð#spyrja#þetta
Fjölgar í hópi sak­borninga og ráðist í hús­leit - Vísir
📅 24.04.2026 21:15:33 👁️ 0

Fjölgar í hópi sak­borninga og ráðist í hús­leit - Vísir

#sakborninga#fjölgar#húsleit#ráðist#vísir
Stjórnarandstaðan sakaði meirihlutann um blekkingar
📅 24.04.2026 20:30:17 👁️ 0

Stjórnarandstaðan sakaði meirihlutann um blekkingar

#stjórnarandstaðan#meirihlutann#blekkingar#sakaði
Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí - Tryggingafélag varar við læknastofu - DV
📅 24.04.2026 20:30:11 👁️ 0

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí - Tryggingafélag varar við læknastofu - DV

#tryggingafélag#íslendingar#læknastofu#milljónir#sviknir
Mikill áhugi nemenda á kórsöng á Laugarvatni og á Selfossi
📅 24.04.2026 20:25:19 👁️ 0

Mikill áhugi nemenda á kórsöng á Laugarvatni og á Selfossi

#laugarvatni#selfossi#nemenda#kórsöng#mikill
Tólf lögreglumál vegna áreitni í garð starfsfólks
📅 24.04.2026 20:01:03 👁️ 0

Tólf lögreglumál vegna áreitni í garð starfsfólks

#lögreglumál#starfsfólks#áreitni#vegna#tólf
Nýtt myndband frá Aðalheiði: Ræðir ghosting og stefnumótaöpp
📅 24.04.2026 20:00:35 👁️ 0

Nýtt myndband frá Aðalheiði: Ræðir ghosting og stefnumótaöpp

#stefnumótaöpp#aðalheiði#myndband#ghosting#ræðir
„Við­reisn er í al­gjörri lykil­stöðu“ - Vísir
📅 24.04.2026 19:56:58 👁️ 0

„Við­reisn er í al­gjörri lykil­stöðu“ - Vísir

#lykilstöðu#viðreisn#algjörri#vísir
Svíar hugfangnir af elgum í leiðangri
📅 24.04.2026 19:43:20 👁️ 0

Svíar hugfangnir af elgum í leiðangri

#hugfangnir#leiðangri#svíar#elgum
Oddvitaumræður í Hveragerði
📅 24.04.2026 19:37:58 👁️ 0

Oddvitaumræður í Hveragerði

#oddvitaumræður#hveragerði
Sendi­menn Trump fara á fund utan­ríkis­ráð­herra Írans á morgun - Vísir
📅 24.04.2026 19:17:49 👁️ 0

Sendi­menn Trump fara á fund utan­ríkis­ráð­herra Írans á morgun - Vísir

#utanríkisráðherra#sendimenn#morgun#trump#írans
70-year-old man revived after drowning incident at beach in Costa Adeje
📅 24.04.2026 19:11:00 👁️ 0

70-year-old man revived after drowning incident at beach in Costa Adeje

#drowning#incident#revived#after#beach
Segist vera réttmætur eigandi Mosa og vera hafður fyrir rangri sök - DV
📅 24.04.2026 18:56:56 👁️ 0

Segist vera réttmætur eigandi Mosa og vera hafður fyrir rangri sök - DV

#réttmætur#eigandi#segist#hafður#rangri
The unexpected benefits of upgrading your Golf Bag
📅 24.04.2026 18:55:00 👁️ 0

The unexpected benefits of upgrading your Golf Bag

#unexpected#upgrading#benefits#your#golf
Sjálfstæðisflokkur tekur fram úr Samfylkingu í borginni
📅 24.04.2026 18:49:07 👁️ 0

Sjálfstæðisflokkur tekur fram úr Samfylkingu í borginni

#sjálfstæðisflokkur#samfylkingu#borginni#tekur#fram
Sonur Reiner sendir frá sér tilfinningaþrungna yfirlýsingu
📅 24.04.2026 18:31:50 👁️ 0

Sonur Reiner sendir frá sér tilfinningaþrungna yfirlýsingu

#tilfinningaþrungna#yfirlýsingu#reiner#sendir#sonur
Bilið á milli turnanna breikkar - Vísir
📅 24.04.2026 18:31:45 👁️ 0

Bilið á milli turnanna breikkar - Vísir

#turnanna#breikkar#bilið#milli#vísir
Hluthafaspjallið | Viðtal við Jón Þorstein, forstjóra Beru – og ruglið í danska Berlingske
📅 24.04.2026 18:31:06 👁️ 0

Hluthafaspjallið | Viðtal við Jón Þorstein, forstjóra Beru – og ruglið í danska Berlingske

#hluthafaspjallið#berlingske#forstjóra#þorstein#viðtal
Vestur­lönd tali opin­skátt um fyrirætlað stríð við Rúss­land - Vísir
📅 24.04.2026 18:30:09 👁️ 0

Vestur­lönd tali opin­skátt um fyrirætlað stríð við Rúss­land - Vísir

#vesturlönd#fyrirætlað#opinskátt#rússland#stríð
Channel 5 newsreader withdraws claims against Dan Walker
📅 24.04.2026 18:17:05 👁️ 0

Channel 5 newsreader withdraws claims against Dan Walker

#newsreader#withdraws#channel#against#claims
Oddvitaumræður í Borgarbyggð
📅 24.04.2026 18:10:03 👁️ 0

Oddvitaumræður í Borgarbyggð

#oddvitaumræður#borgarbyggð
Vendingar í borginni og tón­leikar í heima­húsum - Vísir
📅 24.04.2026 18:05:44 👁️ 0

Vendingar í borginni og tón­leikar í heima­húsum - Vísir

#heimahúsum#vendingar#tónleikar#borginni#vísir
Director Rob Reiner's son Jake Reiner bares soul on how he found out his parents were dead
📅 24.04.2026 18:02:54 👁️ 0

Director Rob Reiner's son Jake Reiner bares soul on how he found out his parents were dead

#director#parents#reiner#bares#found
AENA take action to ease passport control queues for British arrivals
📅 24.04.2026 17:51:00 👁️ 0

AENA take action to ease passport control queues for British arrivals

#passport#arrivals#control#british#action
Sakamálarannsókn á hendur seðlabankastjóra felld niður
📅 24.04.2026 17:48:23 👁️ 0

Sakamálarannsókn á hendur seðlabankastjóra felld niður

#sakamálarannsókn#seðlabankastjóra#hendur#felld#niður
Evrópusambandið rannsakar meint brot Mandelsons meðan hann var viðskiptastjóri
📅 24.04.2026 17:39:00 👁️ 0

Evrópusambandið rannsakar meint brot Mandelsons meðan hann var viðskiptastjóri

#evrópusambandið#viðskiptastjóri#mandelsons#rannsakar#meint
Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar - DV
📅 24.04.2026 17:30:53 👁️ 0

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar - DV

#fjárhagsaðstoð#útlendingar#reykjavík#hverjum#þremur
Fimm bíla á­rekstur á Reykja­nes­braut - Vísir
📅 24.04.2026 17:28:01 👁️ 0

Fimm bíla á­rekstur á Reykja­nes­braut - Vísir

#reykjanesbraut#árekstur#vísir#fimm#bíla
Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf. - DV
📅 24.04.2026 17:01:55 👁️ 0

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf. - DV

#taumunum#margrét#tekur#legal#esja
Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut
📅 24.04.2026 17:01:40 👁️ 0

Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut

#reykjanesbraut#árekstur#fimm#bíla
Nokkurra bíla árekstur á Reykjanesbraut
📅 24.04.2026 17:01:40 👁️ 0

Nokkurra bíla árekstur á Reykjanesbraut

#reykjanesbraut#nokkurra#árekstur#bíla
Nútíma óligarkinn – Kristján Arason, Centra ráðgjöf og skatta undanskotin
📅 24.04.2026 16:57:35 👁️ 0

Nútíma óligarkinn – Kristján Arason, Centra ráðgjöf og skatta undanskotin

#undanskotin#óligarkinn#kristján#ráðgjöf#nútíma
Lista­verkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu - Vísir
📅 24.04.2026 16:55:31 👁️ 0

Lista­verkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu - Vísir

#listaverkið#náttúruna#svæðinu#öryggi#vernda
Tveir helstu samningamenn Bandaríkjanna á leið til fundar við utanríkisráðherra Írans
📅 24.04.2026 16:47:29 👁️ 0

Tveir helstu samningamenn Bandaríkjanna á leið til fundar við utanríkisráðherra Írans

#utanríkisráðherra#bandaríkjanna#samningamenn#helstu#fundar
Orrustuþotur höfðu afskipti af rússneskum herþotum innan lofthelginnar
📅 24.04.2026 16:47:16 👁️ 0

Orrustuþotur höfðu afskipti af rússneskum herþotum innan lofthelginnar

#lofthelginnar#orrustuþotur#rússneskum#afskipti#herþotum
Dagur segir enga hættu felast í því að láta reyna á samninga við ESB - DV
📅 24.04.2026 16:30:53 👁️ 0

Dagur segir enga hættu felast í því að láta reyna á samninga við ESB - DV

#samninga#felast#dagur#segir#hættu
Hegseth segir Írana hafa sögulegt tækifæri til samkomulags við Bandaríkin
📅 24.04.2026 16:20:33 👁️ 0

Hegseth segir Írana hafa sögulegt tækifæri til samkomulags við Bandaríkin

#samkomulags#bandaríkin#sögulegt#tækifæri#hegseth
Israeli police investigate after officers 'cut Palestinian flag' from skullcap
📅 24.04.2026 16:20:10 👁️ 0

Israeli police investigate after officers 'cut Palestinian flag' from skullcap

#investigate#palestinian#officers#skullcap#israeli
Mandelson under formal investigation by EU's anti-fraud office
📅 24.04.2026 16:18:19 👁️ 1

Mandelson under formal investigation by EU's anti-fraud office

#investigation#mandelson#formal#office#under
Sinueldur kviknaði við bensín­stöð - Vísir
📅 24.04.2026 16:13:48 👁️ 0

Sinueldur kviknaði við bensín­stöð - Vísir

#bensínstöð#sinueldur#kviknaði#vísir
Horfðu til himins
📅 24.04.2026 16:10:00 👁️ 0

Horfðu til himins

#horfðu#himins
Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða
📅 24.04.2026 16:08:00 👁️ 0

Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða

#fyrirboða#musical#snorra#school#segir
Sinueldur við N1 í Fossvogi
📅 24.04.2026 15:56:06 👁️ 0

Sinueldur við N1 í Fossvogi

#sinueldur#fossvogi
Starfsfólk N1 slökkti sinueld skammt frá bensínstöðinni
📅 24.04.2026 15:56:06 👁️ 0

Starfsfólk N1 slökkti sinueld skammt frá bensínstöðinni

#bensínstöðinni#starfsfólk#slökkti#sinueld#skammt
Leikskólapláss losna óvænt í Vesturbænum
📅 24.04.2026 15:53:12 👁️ 0

Leikskólapláss losna óvænt í Vesturbænum

#leikskólapláss#vesturbænum#losna#óvænt
Tveir Íslendingar týndir á erlendri grundu í níu mánuði
📅 24.04.2026 15:33:25 👁️ 0

Tveir Íslendingar týndir á erlendri grundu í níu mánuði

#íslendingar#erlendri#týndir#grundu#mánuði