Ísland sækist eftir að taka sæti í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar árin 2027 til 2030 og býður til þess fram krafta Ástu Valdimarsdóttur, ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytisins.
Á vef stjórnarráðsins segir að Ísland leggi áherslu á jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og að heilsa barna og ungmenna sé alltaf í forgrunni. Einnig er áréttað mikilvægi öflugs alþjóðlegs samstarfs, gagnsæis og jafnræðis í stjórnun stofnunarinnar.
Ásta er núverandi formaður fastanefndar Evrópuskrifstofu heilbrigðisstofnunarinnar og sögð hafa víðtæka reynslu af alþjóðlegu samstarfi, meðal annars innan ESB og Sameinuðu þjóðanna.
Niðurstaðan ræðst í haust
Ásta etur kappi við frambjóðendur Þýskalands og Lúxemborgar og niðurstaðan ræðst á fundum í haust.
Ákvörðunin er í höndum Evrópudeildar og framkvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Framkvæmdastjórnin mótar stefnu stofnunarinnar og samanstendur af 34 fulltrúum aðildarríkja sem kjörnir eru til þriggja ára.
Norðmenn eiga nú sæti í framkvæmdastjórninni. Norðurlöndin hafa lengi átt óformlegt samstarf um setu þar og skiptast jafnan á að sækjast eftir henni. Davíð Á. Gunnarsson, þáverandi ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins, var fulltrúi í framkvæmdastjórninni árin 2003 til 2006.