Ísland er í 15. sæti yfir bestu lönd í heiminum á nýjum lista U.S. News & World Report. Heilbrigðismálin lyfta Íslandi upp en lítill efnahagsvöxtur og skortur á skóglendi er meðal þess sem dregur landið niður.
Listinn, sem er gefinn út af bandaríska fjölmiðlinum, tekur á ýmsum þáttum og fær hvert land stig fyrir ýmsar breytur. Meðal annars eru þetta efnahagsmál, ferðamennska, umhverfismál, heilsa, innviðir, náttúra, stjórnsýsla og tækifæri þegnanna.
Ísland er í 15. sæti á heildarlistanum og skorar 71,3 stig. En landið skorar mjög mishátt í hverjum flokki.
Langlífi mikið en litlar erlendar fjárfestingar
Ísland er í efsta sæti í bæði heilbrigðismálum og tækifærum þegnanna. Tekið er fram að Ísland standi sig vel í greiningu sjúkdóma, að takast á við farsóttir og séu með góða heilsugæslu. Hér séu allir sjúkratryggðir, bólusetningarhlutfall sé hátt, langlífi mikið og barnadauði fátíður. Það eina sem vantar séu fleiri pláss á sjúkrahúsum.
Þegar kemur að tækifærum þá er menntunarstigið hátt og laun nokkuð há. Hér sé gott að stofna fyrirtæki og aðhald hins opinbera sé nokkuð réttlátt. Á móti kemur að erlendar fjárfestingar eru ekki mjög miklar sem og aðgengi að lánsfé. Þá sé atvinnuleysi nokkuð og skattlagning í hærri kantinum.
Lítill efnahagsvöxtur og fábreytt náttúra
Versti flokkur Íslands er efnahagurinn. Er Ísland aðeins í 34. sæti þar. Þó að landsframleiðsla sé góð og nýsköpun þó nokkur þá er markaðurinn mjög lítill og efnahagslegur vöxtur sömuleiðis.
Einnig dregur náttúran og umhverfið okkur niður. Vatnið og loftið er vissulega hreint og nóg af athyglisverðum náttúrufyrirbærum til að skoða. En skortur á skóglendi vegur þungt sem og fábreytt dýralíf, skortur á vernduðum svæðum og töluvert mikil losun gróðurhúsalofttegunda.
Þegar kemur að innviðum er nefnt að aðgengi að hreinu drykkjarvatni sé mikið hér á landi, góðar og traustar nettengingar, góðar almenningssamgöngur og nokkuð gott vegakerfi. Hins vegar sé nokkuð mikil hætta á náttúruhamförum sem geti ógnað innviðum, einkum jarðskjálftum.
Hamingjusöm en kvíðin þjóð
Í flokknum stjórnsýsla er nefnt að íslenska vegabréfið veiti borgurum mikið ferðafrelsi, hér sé lítið um glæpi og spillingu og bæði stjórnsýslan og stjórnmálin virki almennt vel. Hið opinbera hafi góðar tekjur af skattheimtu en þó sé skuldsetningin almennt frekar há.
Þá er nefnt að Íslendingar séu mjög hamingjusamir, traust sé mikið í samfélaginu, tjáningarfrelsi ríki, kosningaþátttaka sé mikil og samfélagið sé almennt frjálslynt og aðhyllist lýðræði. Íslendingar séu hins vegar nokkuð kvíðin þjóð.
Evrópa trónir á toppnum
Sviss er besta land í heimi samkvæmt listanum. Þar á eftir koma Danmörk, Svíþjóð, Þýskaland, Holland, Noregur, Bretland, Finnland, Lúxemborg, Austurríki, Belgía, Frakkland, Írland og Ástralía. Loks kemur Ísland í fimmtánda sæti.